- Félagið & fagið
- Kaup & kjör
- Styrkir & sjóðir
- Orlofskostir
- Mínar síður
Blaðamannafélag Íslands stendur fyrir pressukvöldi annað kvöld, mánudagskvöld 17. maí klukkan 20 í húsnæði félagsins að Síðumúla 23.
Umræðuefni kvöldsins er: Heilbrigð og nauðsynleg gagnrýni á störf fjölmiðlafólks eða árásir og ofsóknir. Hvar liggja mörkin? Umræðufundur félaga í Blaðamannafélagi Íslands um sjálfstæði fjölmiðla, tjáningarfrelsið og árásir stórfyrirtækja og stjórnmálaafla á fjölmiðla og fjölmiðlafólk.
Þrjú verða með erindi og að þeim loknum verða umræður.
Kjartan Bjarni Björgvinsson, formaður Dómarafélags Íslands:
Hvaða verndar nýtur fjölmiðlafólk samkvæmt Mannréttindasáttmála Evrópu?
Valgerður Jóhannsdóttir, lektor í blaða- og fréttamennsku við Háskóla Íslands:
Þetta snýst ekki bara um Helga Seljan.
Þóra Arnórsdóttir, ritstjóri Kveiks:
Starfað í skugga árása.
Sigríður Dögg Auðunsdóttir, formaður BÍ, stýrir fundinum.