- Félagið & fagið
- Kaup & kjör
- Styrkir & sjóðir
- Orlofskostir
- Mínar síður
Hálfsíðu auglýsing með dómi Hæstaréttar dugar ekki sem fullnusta á birtingu dóms að mati lögmanns Jóns Snorra Snorrasonar sem höfðaði mál á hendur DV og vann. Í úrskurði réttarins var kveðið á um birtingu dómsins og er Jón Snorri og lögmaður hans ósátt við hvernig það var gert og hafa krafist úrbóta. Jón Trausti Reynisson ritstjóri DV greinir frá þessu í bloggi í gær og bendir m.a. á að það hafi nánast farið saman í tíma að hann hafi verið boðaður til sýslumanns vegna kvartana vegna birtingar dómsins og að málflutningur fór fram gegn Jóni Snorra í Héraðsdómi Reykjavíkur.