- Félagið & fagið
- Kaup & kjör
- Styrkir & sjóðir
- Orlofskostir
- Mínar síður
Bæði Alþjóðasamband blaðamanna (IFJ) og Evrópusamband blaðamanna (EFJ) hafa fordæmt ógnanir og hótanir sem blaðamenn sem eru að skrifa um hægri öfgaflokkinn Gullin dögun í Grikklandi hafa orðið fyrir. Samtökin lýsa fullum stuðningi við þá félag sem órauðir halda áfram að birta og opinbera upplýsingar um samtökin og fjalla um morðið á hipp hopp tónlistarmanni þann 18. september síðast liðinn þrátt fyrir hótanir um obeldi. Samkvæmt upplýsingum frá Blaðamannafélagi dagblaða í Aþenu, JUADN, hafa blaðamenn fengið hótanir og orðið fyrir árásum frá þingmönnum og forustumönnum Gullnar dögunar.