- Félagið & fagið
- Kaup & kjör
- Styrkir & sjóðir
- Orlofskostir
- Mínar síður
Segja má að í Bandaríkjunum hafi fréttaneytendur netfrétta verið á ferðinni í ársbyrjun þessa árs, samkvæmt niðurstöðum PEW rannsóknarstofnunarinnar um Stöðu fréttamiðla 2015 (State of the News Media 2015). Þá voru heimsóknir á 39 af 50 stærstu fréttasíðum landsins að meirihluta frá snjallsímum og öðrum slíkum tækjum en ekki frá borðtölvum. Hins vegar dvöldu fleiri þeirra sem skoðuðu netfréttir úr borðtölvu mun lengur á um 25 þessara 50 fréttasíðna, en þeir sem heimsóttu síðurnar úr snjallsímum eða slíkum tækjum. Á tíu þessara síðna voru farsímanotendur lengur inni á síðunni en borðtölvunotendur og a 15 síðum voru báðar þessar tegundir notenda álíka lengi inni á síðunum.
Í samræmi við vaxandi notkun á ýmis konar snjalltækjum hefur notkun á samfélagsmiðlum aukist mikið varðandi fréttir og þróunin er í raun komin á nýtt stig. Þannig sýna tölur rannsóknarinnar að á árinu 2014 sé svo komið að um helmingur fullorðinna netverja fái fréttir af stjórnmálum og stjórnvöldum í gegnum samfélagsmiðilinn Facebook, en það þýðir að fréttamatið sem stýrir fréttadagskrá þessa hóps er komið frá Facebook-vinum eða af síunarvélum samfélagsmiðlanna, svokölluðum algoriðmum (algorithms).
Sjá meira um könnunina hér