- Félagið & fagið
- Kaup & kjör
- Styrkir & sjóðir
- Orlofskostir
- Mínar síður
Frönsk stjórnvöld er nú að íhuga að víkka út afnotagjaldið fyrir sjónvarpið þannig að það nái til tölvuskjáa líka, og auk þannig tekjur sem renna til ríkisstyrkts almannaútvarps í landinu. Þetta er haft eftir menningarmálaráðherranum á laugardag. Vinstristjórn Francois Hollande stefnir að því að auka skatttekjur um 7,5 milljarða evra á þessu ári með skattahækkunum og verða þessar hækkanir kynntar í endurskoðuðum fjárlögum síðar í vikunni. Afnotagjaldið sem nú 125 evrur í Frakklandi og 80 evrur í fylkjum sem lúta franskri stjórn utan Frakklands hafa farið óskipt í að fjármagna almannaútvarp og sjónvarp. En samkvæmt könnun sem Global TV birti fyrr á þessu ári eru það meira en 11 milljón manns sem reglulega horfa á sjónvarp af tölvuskjá, spjaldtölvum eða snjallsímum og hefur sú tala hækkað um 41% frá því á sama tíma í fyrra.