- Félagið & fagið
- Kaup & kjör
- Styrkir & sjóðir
- Orlofskostir
- Mínar síður
Fjölmenni var á Pressukvöldi Blaðamannafélags Íslands og Félags fréttamanna á Kornhlöðuloftinu í Reykjavík í gær. Umræðuefnið var sviptingar á fjölmiðlamarkaði og voru frummælendur þau Magnús Geir Þórðarson, útvarpsstjóri RÚV, Björn Ingi Hrafnsson, útgefandi DV og Pressunar, Jón Trausti Reynisson, ritstjóri Stundarinnar og Elfa Ýr Gylfadóttir, framkvæmdastjóri Fjölmiðlanefndar. Fundarstjóri var Sigríður Hagalín Björnsdóttir, varafréttastjóri RÚV. Að loknum framsöguerindum fóru fram almennar umræður og var spurningum beint til allra frummælenda. Fjárhagsleg staða fjölmiðla og rekstragrundvöllur til framleiðslu á ritstjórnarefni virtist fundarmönnum nokkuð ofarlega í huga og hvernig unnt væri að búa fjölmiðlum eða sjálfstæðum blaðamönnum umgjörð sem tryggði fjárhaglegan grundvöll fyrir sjálfstæðri blaðamennsku.
Elfa Ýr Gylfadóttir og Jón Trausti Reynisson á Pressukvöldinu. Mynd:sbs
Sigríður Hagalín Björnsdóttir var fundarstjóri. Mynd:sbs