- Félagið & fagið
- Kaup & kjör
- Styrkir & sjóðir
- Orlofskostir
- Mínar síður
Næstkomandi fimmtudagskvöld verður þögn verður í sjö mínútur frá klukkan 21:00 á nokkrum einkareknum ljósvakamiðlum. Með þessu vilja miðlarnir undirstrika með táknrænum hætti mikilvægi þess að samkeppnisstaða sé jöfnuð á íslenskum fjölmiðlamarkaði. Á dögunum sendu fjölmiðlarnir Hringbraut, 365 miðlar, ÍNN, Útvarp i Saga og Sjónvarp Símanns, frá sér áskorun um þetta efni og hvöttu til að RÚV yrði tekið af auglýsingamarkaði strax um næstu áramót. Í tilkynningu frá þessum sömu miðlum segir að þeir fagni jákvæðum viðbrögðum þingmanna þvert á flokka sem birtust í kjölfar ákalls þeirra um að fjölmiðlalögum yrði breytt til þess að jafna samkeppnisstöðu þeirra á íslenskum fjölmiðlamarkaði. Síðan segir vegna þagnarinnar sem verður á miðlunum á fimmtudagskvöld:
Afar mikilvægt er að einkareknir fjölmiðlar sitji við sama borð og erlendir keppinautar sem nú herja bæði á áskriftar- og auglýsingamarkað á sama tíma og þeir greiða hér hvorki skatta né gjöld. Þessir miðlar lúta ekki íþyngjandi reglum um meðhöndlun efnis sem innlendir fjölmiðlar reglum gera. Einkareknir miðlar treysta á tekjur af auglýsingasölu til að standa undir starfseminni og því væri öllum til hagsbóta væru opinberir fjölmiðlar ekki á þeim markaði, segir í fréttatilkynningunni.
Engar útsendingar verða frá eftirtöldum fjölmiðlum: Útvarp Saga, ÍNN, Stöð 2, Stöð 3, Bíórásin, Bylgjan, LéttBylgjan, GullBylgjan, FM Extra, FMX, 80s Bylgjan, FM957, X-ið, Sjónvarp Símans, K100, Retro, Sjónvarp Hringbrautar, Útvarp Hringbrautar FM89,1.