- Félagið & fagið
- Kaup & kjör
- Styrkir & sjóðir
- Orlofskostir
- Mínar síður
Í gær var fyrsti viðurkenndi alþjóðadagur um rétt til upplýsinga og af því tilefni hafa ýmis borgarasamtök sem berjast mannréttindum ásamt samtökum sem starfa á sviði upplýsingamiðlunar þar á meðal Evrópusamband blaðamanna viðrað nokkrar áhyggjur af stöðu mála varðandi upplýsingafæði frá stjórnvöldum Evrópuríkja. Þessar áhyggjur tengjast meðal annars litlu gegnsæi í stjórnsýslu sem valdur vantrausti og þar með uppgani populisma í álfunni. Samkvæmt nýrri athugun á upplýsingafæði í nokkrum löndum í Evrópu þá hafur ástandið skánað en er enn víða mjög bágborið. Meðal þess sem bent hefur verið á er að víða er skráning gagna og fundargerða í molum og ekki hægt að finna upplýsingar um hvað gerðist á mikilvægum fundum eða finna út efnisatriði samskipta við hagsmunaaðila. Fyrir vikið vantar iðulega rökstuðning eða forsendur fyrir ákvörðunartöku.
Sjá meira um málið hér