- Félagið & fagið
- Kaup & kjör
- Styrkir & sjóðir
- Orlofskostir
- Mínar síður
Vestan hafs tala menn nú um bleksvartan föstudag þegar vísað er til síðasta föstudags en útgefendur í New York luku vinnuvikunni á sérstaklega svörtum nótum. Verulegur niðurskurður með tilheyrandi uppsögnum eru nú yfirvofandi hjá báðum helstu götublöðum borgarinnar, Daily News og New York Post. Í því óvissuástandi sem ríkir í útgáfunni koma fréttirnar frá vikublaðinu Village Voice sem greindi frá því fyrirhelgina að uppsagnir væru í bígerð hjá keppinautunum og þar á meðal yrðu þekktir dálkahöfndar og blaðamenn látnir fara líka.