- Félagið & fagið
- Kaup & kjör
- Styrkir & sjóðir
- Orlofskostir
- Mínar síður
Aðalfundur Evrópusambands blaðamanna verður haldinn í Budva í Svartfjallalandi þann 1-2 júní næstkomandi. Gestgjafi verður aðildarfélag EFJ, Fjölmiðlasamband Svartfjallalands. Viðfangsefnið á þessum aðalfundi verður umræða um hlutverk og möguleika blaðamannafélaga og er yfirskrift fundarins: Styrkari starfsréttindi fyrir blaðamenn: aukinn styrkur fagfélaga á tímum breytinga. Þá hefur verið skipulagður á mánudagskvöldinu sérstakur viðburður þar sem rætt verður ástandið milli Úkraínu og Rússlands.
Sjá bráðabirgðadagskrá hér