- Félagið & fagið
- Kaup & kjör
- Styrkir & sjóðir
- Orlofskostir
- Mínar síður
Í kjölfar árásanna í París s.l. föstudag hefur Evrópusamband blaðamanna vottað aðstandendum fórnarlambanna, þar á meðal blaðamannsins Guillaume B. Decherf og tökumannsins Mathieu Hoche. Framkvæmdastjóri EFJ, Ricardo Gutierrez segir viðbrögð frönsku þjóðarinnar við hryðjuverkunum aðdáunarverð - þar komi fram að hún láti ekki hræða sig. Ekki frekar en blaðamennirnir sem vinna allan sólarhringinn við að færa borgurum upplýsingar um þessi voðaverk, segir hann. Framkvæmdastjórinn segir ennfremur: Blaðamenn munu ekki láta undan, og rétt eins og í kjölfar árásanna á Charlie Hebdo þá munu blaðamenn halda áfram að verja tjáningarfrelsið en forðast að fara inn á slóðir hatursorðræðu. Það er er sú virðing sem sæmir best virðingu fórnarlambanna.
EFJ segir að ákall sambandsins frá því í kjölfar árásanna á Charlie Hebdo í janúar sé en í fullu gildi en það var eftirfarandi:
Hvað ber blaðamönnum að gera?
Andæfa öllum freistingum um auknar njósnaheimildir því blaðamenn vilja ekki samfélag þar sem persónulegt og félagslegt frelsi okkar er kæft í nafni þjóðaröryggis.
Ekki láta ótta eða hatur ná yfirhöndinni.
Berjast gegn staðalmyndum og óstaðfestum sögusögnum.
Fordæma ógnvænlegar afleiðingar mismununar og misskiptingar meðal fólks.
Framar öllu að spyrja í sífellu um siðferðilega ábyrgð okkar sem blaðamanna.
Ricardo Gutiérrez segir um þetta: Það er á okkar ábyrgð að rækja varðhundshlutverk okkar þrátt fyrir alla erfiðleika sem við kunnum að mæta.