- Félagið & fagið
- Kaup & kjör
- Styrkir & sjóðir
- Orlofskostir
- Mínar síður
Á ársfundi EFJ í fyrra var samþykkt áskorun á framkvæmdastjórn EFJ að vinna að því að Evrópusambandið yrði sjálfstæð lögpersóna í samræmi við belgísk lög, þar sem sambandið hefur aðsetur. Til að þetta sé hægt þarf að breyta samþykktum félagsins og það verður aðeins gert á "sérstökum aðalfundi", sem boðaður hefur verið sem slíkur. Því hefur framkvæmdastjórnin ákveðið að boða til þessa fundar sem sérstaks aðalfundar í samræmi við grein 5.1 í lögum Evrópusambands blaðamanna.