- Félagið & fagið
- Kaup & kjör
- Styrkir & sjóðir
- Orlofskostir
- Mínar síður
Blaðakonur í Bretlandi og ugglaust víðar, sem starfa við netfjölmiðla og blogg, hafa á síðustu misserum orðið fyrir talsverðu kynbundnu einelti á netinu. Þetta varð tilefni til þess að breska blaðamannasambandið NUJ efndi til ráðstefnu á dögunum undir yfirskriftinni: Don´t tweet me this way still sexist and not just on paper." Micelle Stainstreet, framkvæmdastjóri NUJ segir að aðgerða sé þörf gagnvart ristjórum netmiðla sem láti hvers kyns óþverraskap og kynbundna niðurnlægingu viðgangast. Hún segir: Ritstjórarnir myndu aldrei leyfa sér að prenta svona í dagblöðum og hvers vegna á þá að láta það viðgangast á netmiðlun?
Frásögn af þessari ráðstefnu og fleiru er varðar jafnrétti í fjölmiðlum er að finna í jafnréttisfréttabréfi IFJ sem sjá má hér.