- Félagið & fagið
- Kaup & kjör
- Styrkir & sjóðir
- Orlofskostir
- Mínar síður
Fjölmargir aðilar, þar á meðal Bandaríkin, Evrópuráðið og ÖSE, hafa fordæmt dóm yfir Khadija Ismayilova sem er azerbajdanískur blaðamaður hjá Radio Free Europe/Radio Liberty, en hún var fyrr í vikunni dæmd í sjö og hálfs árs fangelsi. Ismayilova hefur sagt margar fréttir á undanförnum misserum sem hafa komið stjórnvöldum í Azerbajdan illa. Fjölmiðlanefnd fjallar um málið í frétt á heimasíðu sinni.