- Félagið & fagið
- Kaup & kjör
- Styrkir & sjóðir
- Orlofskostir
- Mínar síður
Alþjóðlegi netöryggisdagurinn verður haldinn hátíðlegur í tíunda sinn þann 5. febrúar næstkomandi. Þemað í ár er Réttindi og ábyrgð á netinu og munu yfir 70 þjóðir um allan heim standa fyrir skipulagðri dagskrá þennan dag.
Netöryggismiðstöðvar 30 Evrópuþjóða, sem mynda Insafe samstarfsnetið, og nærri 40 önnur lönd munu þennan dag leiða saman ýmsa hagsmunaðila til þess að vekja athygli á og ræða netið. Samstarfsnetið hefur látið framleiða stutta auglýsingu til þess að styðja við átakið, en hún verður aðgengileg á netinu og sýnd í sjónvarpi næstu daga.
Í tilefni dagsins stendur SAFT fyrir málþingi í Skriðu, aðalbyggingu Menntavísindasviðs Háskóla Íslands v/Stakkahlíð, kl. 13.00-16.00. Málþingið er haldið í samstarfi við ráðuneyti innanríkis-, velferðar- og mennta- og menningarmála, Póst- og fjarskiptastofnun, Símann, Lenovo, Microsoft Íslandi og Háskóla Íslands. Fundarstjóri er Hafþór Freyr Líndal, ungmennaráði SAFT.
Dagskrá:
13.00 Katrín Jakobsdóttir, mennta- og menningarmálaráðherra, setur málþingið og veitir verðlaun í samkeppni um besta barnaefnið á netinu
13.15 Málstofa 1 stofa H207 - Skólinn, uppeldi og samfélagsmiðlar
Hver er draumaskólinn?
Tölvu- og töflumenning
Bætt upplýsingalæsi aukin meðvitund um netöryggi í grunnskólum landsins
Tölvur í leikskólum, til hvers?
Einelti
Fjárhættuspila
Klám á netinu
Birtingamynd kynjanna
Netið og sjálfsmynd
Ábyrgð foreldra
Félagsleg virkni og samskipti
Internetið er komið til að vera
Kommentakerfi fjölmiðla
13.15 Málstofa 2 stofa H205 - Tækni, öryggi og lög
Áhrif snjalltækja á samskipti
Opinn hugbúnaður og apps
Auðkenning á netinu
Tölvuský
Forvarnir og fræðsla um netvarnir
Ábendingahnappur
Niðurhal og PEGI
Frumvarp um landslénið .is
IGF umræðuvettvangur um skipulag og þróun internetsins
Réttindi og skyldur á netinu
Almenn hegningarlög og úrræði við ólögmætu efni á netinu
Netsíun
16.00 Veitingar
Málþingið verður sent beint út á Netinu en nánari upplýsingar er að finna á heimasíðu SAFT.
Vinsamlegast tilkynnið þátttöku með því að senda tölvupóst á saft@saft.is eða hér á Facebook síðu SAFT, en þingið er öllum opið án endurgjalds á meðan húsrúm leyfir.