- Félagið & fagið
- Kaup & kjör
- Styrkir & sjóðir
- Orlofskostir
- Mínar síður
Konur í stjórnmálum brýnt erindi eða ljótur jakki? er yfirskrift erindis sem Guðbjörg Hildur Kolbeins mun flytja á fundi hjá Femínistafélagi Íslands nú á fimmtudaginn,1. nóvember. Erindið fjallar um umfjöllun fjölmiðla um konur í kosningabaráttu og hlutfall kynjanna í kosningaumfjöllun fjölmiðla. Hin óvenjulega yfirskrift er sótt í umræðu sem orðið hefur um grænan jakka sem Angela Merkel klæddist í sumar og vakti mikla athygli.
Fundurinn verður haldinn á veitingastaðnum Horninu í Hafnarstræti 5 og hefst kl. 20:00