- Félagið & fagið
- Kaup & kjör
- Styrkir & sjóðir
- Orlofskostir
- Mínar síður
Stofnun um upplýsingasiðfræði og nýsköpun í Bretlandi, CDEI (Centre for Data Ethics and Innovation),sem er formlegur ráðgjafi breskra stjórnvalda, leggur til í nýrri skýrslu til stjórnvalda að setja beri reglur um algóriðma eða algrími á samfélagsmiðlum sem stýra flæði stöðuuppfærslna, myndskeiða og auglýsinga. Þetta eru tillögur sem tengjast fyrirhugaðri endurskoðun á öllu regluverki varðandi netið og kemur enn fremur fram í þessari skýrslu tillaga um að stjórnvöld geri kröfu um að samfélagsmiðlafyrirtækin gefi óháðu fræðafólki aðgang að meta-gögnum samfélagsmiðlanna ef rannsóknarefnið beinist að mikilvægum almannahagsmunum s.s. áhrifum samfélagsmiðla á heilsu eða dreifingu upplýsingamengunar.