- Félagið & fagið
- Kaup & kjör
- Styrkir & sjóðir
- Orlofskostir
- Mínar síður
Laura Kuenssberg, ritstjóri pólitískrar umfjöllunar hjá BBC fékk í vikunni útnefningu sem blaðamaður ársins hjá bresku blaðamannaverðlaununum Press Gazette's British Journalism Awards. Verðlaunin fær hún fyrir að hafa staðið í lappirnar, eins og dómnefnd orðar það, í umfjölluninni um Brexit. Um er að ræða tiltölulega ný verðlaun, fyrst afhent árið 2012, sem sett voru á fót í kjölfar símahlerunar-hneykslisins og Leveson rannsóknarinnar. Hugmyndin er að þetta séu hin bresku Pulizer-verðlaun. Verðlaunin eru veitt í 13 flokkum.
Fyrir rannsóknarblaðamennsku deildu Guardian og Panoramaþátturinn á BBC verðlaununum fyrir umfjöllun sína byggða á Panamaskjölunum, sem hafði gríðarleg áhrif á stjórnmál í Bretlandi. Panamaskjölin höfðu mikil áhrif á æðstu stöðum stjórnkerfa nokkurra landa, þar á meðal í Bretlandi, Rússlandi og á Íslandi.