- Félagið & fagið
- Kaup & kjör
- Styrkir & sjóðir
- Orlofskostir
- Mínar síður
Í nýlegri könun PEW stofnunarinnar í Bandaríkjunum á ýmsu er varðar fjölmiðlanotkun þarlendra kemur fram að almenningur treystir staðbundnum fjölmiðlum best. Í könnuninn var spurt hvort fólk treysti fjölmiðlum vel eða hvort það treysti þeim nokkuð (some) og svo hvorki/né og síðan hvort það treysti þeim ekki og alls ekki. Í ljós kom að fólk sagðist flest treysta staðbundnum miðlum, en um 22% sögðust treysta þeim vel en um 60% treystu þeim nokkuð. Sambærileg tala fyrir landsdekkandi miðla var 18% sem treystu þeim vel og 59 sem treystu þeim nokkuð. Sú niðurstaða er svipuð því sem kom út þegar spurt var um traust á fréttum sem vinir og vandamenn segðu þeim. Áberandi er hins vegar að traust á fréttum sem komu á samfélagsmiðlum er mun sjaldgæfara, en aðeins 4% svarenda sögðust treysta fréttum þaðan vel og 30% kváðust treysta þeim nokkuð.
Sjá einnig hér