- Félagið & fagið
- Kaup & kjör
- Styrkir & sjóðir
- Orlofskostir
- Mínar síður
Verðlaunanefnd Blaðamannaverðlauna BÍ óskar eftir tilnefningum til verðlauna fyrir árið 2016, en verðlaunin verða veitt í 14. skipti þann 3. mars næstkomandi. Tilnefningar dómnefndar verða kynntar viku fyrir afhendingu en skilafrestur tilnefninga til dómnefndar er kl. 12 á hádegi föstudaginn 27. janúar 2017.
Eins og síðustu ár verða verðlaunin veitt í fjórum flokkum:
Besta umfjöllun ársins 2016
Viðtal ársins 2016
Rannsóknarblaðamennska ársins 2016
Blaðamannaverðlaun ársins 2016
Hægt er að senda inn tilnefningar til verðlaunanna til skrifstofu Blaðamannafélagsins í Síðumúla 23 á auglýstum skrifstofutíma ásamt gögnum með röksemdafærslu fyrir tilnefningunni. Jafnframt er hægt að senda tilnefningar inn rafrænt.
Tilnefningar dómnefndar verða gerðar kunnar föstudaginn 24. febrúar. Viku síðar, þann 3. mars, verða verðlaunin sjálf afhent.
Sjá reglugerð um Blaðamannaverðlaun B.Í.