- Félagið & fagið
- Kaup & kjör
- Styrkir & sjóðir
- Orlofskostir
- Mínar síður
Carlos Dada, sem er ritstjóri og stofnandi vefmiðilsins El Faro fékk verðlaun Önnu Politkovskayu fyrir rannsóknarblaðamennsku og störf við erfiðar aðstæður, en það er ítalska blaðið Internationale á Ítalíu stendur að verðlaununum. Verðlaunin voru sett voru á fót til að heiðra minningu rússnesku blaðakonunnar og mannréttindafrömuðarins Önnu Politkovskayu sem var myrt árið 2006 í Moskvu. El Faro, eða Vitinn er fyrsti miðillinn í Rómönsku Ameriku sem starfar eingöngu á netinu og hefur hann fjallað mikið um átök milli gengja í höfuðborginni San Salvador sem og lítið gagnsæi stjórnsýslunnar í landinu. Meðal annars hefur miðillinn fjallað um samninga sem stjórnvöld hafa gert við gengin, en sú umfjöllun hefur stefnt öryggi starfsmanna miðilsins í hættu og hafa þeir mátt búa við ógnanir og hótanir.
El Faro hefur áður fengið viðurkenningu fyrir afhjúpandi umfjöllun sína um ýmis mál, m.a. um morðið á erkibiskupnum Óscar Romero, sem hersveitir stjórnvalda drápu á sínum tíma. Þá tilnefndi Skrifstofa amerískra mannréttindamála í Wasington miðilinn sem einn af verðlaunahöfum fyrir mannréttindabaráttu í ár og í fyrra var El faro veitt verðlaun Colimbiu haskólans í baðamennsku, the Maria Moors Cabot Prize.