- Félagið & fagið
- Kaup & kjör
- Styrkir & sjóðir
- Orlofskostir
- Mínar síður
Samkvæmt skýrslu sem undirstofnun Sameinuðu þjóðanna, UNESCO, hefur birt þá voru að minnsta kosti 827 blaðamenn drepnir við störf sín á árabilinu frá 2006 til 2015. Þar af voru 115 drepnir í fyrra. Innan við einn tíundi þessara drápa hafa verið upplýst þrátt fyrir að fjölmörg lönd hafi lýst sig viljug til að berjast með virkum hætti gegn ofbeldi og drápum á blaðamönnum. Á árunum 2014 og 2015 voru 213 blaðamenn drepnir í Arabaríkjum, 51 var drepinn í Rómönsku Ameríku og í ríkjum Karabíahafsins, 34 í Asíu, 27 í Afríku og 12 í Mið- og Austur-Evrópu. Næstum helmingur þeirra net-blaðamanna, sem drenir hafa verið á síðustu tveimur árum voru að dekka ástandið í Sýrlandi.