- Félagið & fagið
- Kaup & kjör
- Styrkir & sjóðir
- Orlofskostir
- Mínar síður
Árni Sæberg, ljósmyndari á Morgunblaðinu, náði þeim áfanga í vikunni að hafa starfað í 40 ár við fréttaljósmyndun. Hann hóf störf sem ljósmyndari á Tímanum 1. febrúar 1983, en flutti sig yfir á ljósmyndadeild Morgunblaðsins um ári síðar, þar sem hann hefur starfað óslitið síðan.
Í tilefni áfangans var Árni heiðursgestur á vikulegri föstudagssamkomu (h)eldri blaðamanna í höfuðstöðvum Blaðamannafélagsins í Síðumúlanum í dag.
Þess má geta að störf Árna sem fréttaljósmyndara voru í brennidepli í þriðja þætti heimildamyndaraðarinnar Ímynd, sem sýndur var á RÚV í gær.