- Félagið & fagið
- Kaup & kjör
- Styrkir & sjóðir
- Orlofskostir
- Mínar síður
Blaðamannafélag Íslands hefur sent áskorun til stjórnmálaflokkana um að gera það að stefnumáli sínu að tryggja að á Íslandi fái þrifist frjálsir, sjálfstæðir og óháðir fjölmiðlar.
Fjölmiðlar eru grundvöllur lýðræðislegrar umræðu og lýðræðislegra samfélaga, um það er ekki deilt. Það er einnig óumdeilt að rekstrarumhverfi fjölmiðla hefur versnað mikið á undanförnum árum. Ástæðan er fyrst og fremst stórfelldar breytingar á fjölmiðlamarkaði með tilkomu erlendra efnisveitna, samfélagsmiðla og tæknirisa á borð við Facebook og Google sem soga til sín æ stærri hluta af auglýsingafé. Þá hefur sú þróun orðið að færri eru tilbúnir til að greiða fyrir fréttir eða fréttatengt efni vegna þess mikla framboðs sem er af fríu fréttaefni á netinu.
Staða fjölmiðla er ekki einkamál fjölmiðlanna sjálfra heldur varðar hún samfélagið allt. Sterkir, öflugir fjölmiðlar eru forsendur þess að hægt sé að veita stjórnvöldum og stórfyrirtækjum nauðsynlegt aðhald. Það ætti að vera markmið hvers lýðræðissamfélags, hverrar ríkisstjórnar, hvers löggjafarþings, að gera það sem í þeirra valdi stendur til að tryggja öfluga, frjálsa og sjálfstæða fjölmiðlastarfsemi í landinu. Því skorar Blaðamannafélag Íslands á þá flokka sem bjóða fram í komandi Alþingiskosningum að taka upp tillögur að nauðsynlegum breytingum sem félagið telur stuðla að því að forsendur fyrir rekstri fjölmiðla gjörbreytist.
Að auki skorar Blaðamannafélagið á stjórnmálaflokka að hafa í huga samfélagslega ábyrgð sína og mikilvægi fjölmiðla fyrir lýðræðislega umræðu í samfélaginu þegar ákvörðun er tekin um birtingu auglýsinga. BÍ hvetur stjórnmálaflokka til að setja sér stefnu, sem birt er opinberlega, um hlutfall auglýsingafjármagns sem veitt er til erlendra miðla, og jafnframt að birta að kosningum loknum sundurliðun á því hve miklu fjármagni var varið til erlendra miðla annars vegar og íslenskra hins vegar.
8 tillögur og nánari upplýsingar er að finna hér