- Félagið & fagið
- Kaup & kjör
- Styrkir & sjóðir
- Orlofskostir
- Mínar síður
Blaðamannafélagið og Kjarninn náðu kjarasamningum nú í kvöld. Samningurinn er á sömu nótum og samningurinn sem skrifað var undir við Birting í gær. Að sögn Hjálmars Jónssonar, formanns BÍ eru viðræður í gangi við aðra miðla sem standa utan SA og miðar þeim viðræðum vel. Á morgun hefjast síðan atkvæðagreiðslur um verkfallsaðgerðir hjá þeim miðlum sem eru innan vébanda SA.