- Félagið & fagið
- Kaup & kjör
- Styrkir & sjóðir
- Orlofskostir
- Mínar síður
Evrópusamband blaðamanna (EFJ) og Blaðamannasambandið í Belgíu (AJP) hafa sameiginlega fordæmt aðgerðir lögreglu í almennum mótmælum sem fram fóru í Brusel þann 6. nóvember síðastliðinn, þar sem lögreglan lét hendur skipta gagnvart ljósmyndurum á vettvangi. Ljósmyndararnir voru að störfum á svæðinu og mjög greinilega merktir sem blaðaljósmyndarar en engu að síður beitt lögrelgumenn þá óásætttanlegu ofbeldi og lömdu m.a. ljósmyndara Sudpresse illa á sama tíma og hann var að taka mynd af lögreglumanni sem hafði meiðst. Það þurfti atbeina tveggja annarra blaðamanna til að aðlda aftur af lögreglu í því tilfelli samkvæmt upplýsingum frá AJP. Fleiri dæmi voru um óásættanlega framkomu lögreglu og hafa fbæði AJP og Evrópusambandið lýst því yfir að þau muni aðstoða félaga sína í að leita réttar síns í dómskerfinu.