- Félagið & fagið
- Kaup & kjör
- Styrkir & sjóðir
- Orlofskostir
- Mínar síður
Atkvæðagreiðsla um nýjan kjarasamning Blaðamannafélags Íslands og Samtaka atvinnulífsins fer fram á morgun þriðjudaginn 25. nóvember 2019. Kjörfundur stendur milli 09.00 og 17.00 og fer á milli vinnustaða um morguninn, en verður eftir hádegið í húsnæði félagsins að Síðumúla 23. Kjörfundur hefst klukkan 09.30 á Fréttablaðinu, 10.30 á Sýn, 11.30 á RÚV og 12.30 á Morgunblaðinu. Frá klukkan 14 til 17 verður kjörfundur í húsnæði félagsins í Síðumúla 23, 3. hæð. Atkvæðisrétt hafa þeir félagsmenn sem taka kjör samkvæmt kjarasamningnum.