- Félagið & fagið
- Kaup & kjör
- Styrkir & sjóðir
- Orlofskostir
- Mínar síður
Þátttaka í atkvæðagreiðslu um vinnustöðvanir Blaðamannafélags Íslands á fjórum stærstu fjölmiðlum landsins var 62% og af þeim sem afstöðu tóku greiddu 85% aðgerðunum atkvæði sitt. Þá höfðu viðræður við viðsemjendur staðið yfir í rúma sex mánuði án nokkurs árangurs.
Þátttaka í atkvæðagreiðslu um nýjan kjarasamning Blaðamannafélags Íslands og Samtaka atvinnulífsins fyrir hönd ofangreindra miðla, þ.e. um svonefndan lífskjarasamning, var 67%. Af þeim sem afstöðu tóku höfnuðu 75% slíkum samningi afdráttarlaust og einungis fjórðungur samþykkti hann.
Nokkrir starfsmenn Árvakurs hafa séð sóma sinn í því að brjóta löglega boðaðar verkfallsaðgerðir Blaðamannafélags Íslands og þannig vegið að samstarfsfólki sínu á vinnustaðnum og lögum landsins. Að óreyndu hefði því ekki verið trúað. Slíkt geðslag virðist benda til þess að viðkomandi viðurkenni ekki rétt fólks til að bindast samtökum í félögum til framgangs kröfum sínum. Það er með miklum ólíkindum.
Hjálmar Jónsson, formaður BÍ