- Félagið & fagið
- Kaup & kjör
- Styrkir & sjóðir
- Orlofskostir
- Mínar síður
Ástæða er til að vekja athygli íslenskra blaðamanna á þremur námskeiðum sem boðið er upp á í Norræna blaðamannaskólanum(NJC) í Árósum í haust. Um er að ræða fjölbreytt og misjanflega ítarleg námskeið og hægt að fá einhverja styrki úr sjóðum BÍ til að dekka hluta af kostnaði. Námskeiðin eru þessi:
Frá Evrópu til Íslands: Árósar Brussel Reykjavík. Þetta námskeið beinir kastljósinu að samfélagsmiðlum og hvernig hægt er að nota þá til að fylgjast með norrænum stjórnmálum bæði í innanlands pólitík og á norrænum og evrópskum vettvangi. Dagsetninga þessa námskeiðs er frá 12. 31. október. Sjá einnig hér
Rannsóknarblaðamennska í nærumhverfinu. Skoðuð verður sérstaklega rannsóknarblaðamennska í smærri samfélögum, Grænlandi, Færeyjum og Íslandi. Fengnir verða blaðamenn frá þessum vestnorrænu ríkjum til að fjalla um efnið og námskeiðið endar svo með því að farið verður á heimsþing rannsóknarblaðamanna, Global Investigative Journalism Network, í Lillehammer í Noregi 8.-11. október. Nánari upplýsingar verða veittar á heimasíðu NJC á www.njc.dk síðar.
Þá verður haldið sérstakt málþing fyrir menningarblaðamenn um norrænu skáldsöguna (reifarann) sem hefur yfirskriftina Hin norræna skáldsaga- spegill samtíðar. Þetta málþing fer fram í Gautaborg dagana 22.-27. október og verður í leiðinni heimsótt bókamessan þar í borg sem fram fer á þessum tíma og er sú umfangsmesta á Norðurlöndum. Sjá einnig hér