- Félagið & fagið
- Kaup & kjör
- Styrkir & sjóðir
- Orlofskostir
- Mínar síður
Stjórn Blaðamannafélags Íslands hefur ákveðið að fresta boðuðum aðalfundi félagsins, sem vera átti 30. apríl næstkomandi, til hausts. Aðgerðir stjórnvalda til að kveða niður faraldur af völdum COVID-19 veirunnar og felast meðal annars í samkomubanni gera það nauðsynlegt, svo sem vísað var til í auglýsingu um aðalfundinn á sínum tíma. Stefnt er að því að fundurinn verði haldinn fimmtudaginn 17. september næstkomandi verði samkomubann úr gildi fallið. Aðalfundur BÍ í haust verður auglýstur á nýjan leik samkvæmt lögum félagsins.