- Félagið & fagið
- Kaup & kjör
- Styrkir & sjóðir
- Orlofskostir
- Mínar síður
Í dag eru 40 ár liðin frá því að Dagblaðið var stofnað. Stofnun DB markaði mikil tímamót í íslenskri fjölmiðlasögu og er tvímælalaust mikilvæg varða á leið blaðanna frá flokksblaðamennsku yfir í markaðsfjölmiðlun. DV minnist stofnunar DB með veglegum hætti í dag og þar er m.a. að finna hringborðsumræður fimm starfsmanna DB sem voru með frá byrjun sem Björn Jón Bragason stýrir. Þetta eru umræður þeirra Jóhannesar Reykdal, útlitsteiknara blaðsins (JR), Jóns Birgis Péturssonar fréttastjóra (JBP), Sigurðar Hreiðars blaðamann (SH), Más E. M. Halldórssonar afgreiðslustjóra (MH) og Sveins R. Eyjólfssonar framkvæmdastjóra (SRE).
Hér má sjá þessar hringborðsumræður