Fréttir

Stjónmál og fjölmiðlar að tengjast meir á ný?

Stjónmál og fjölmiðlar að tengjast meir á ný?

Stjórnmálaöflin og fjölmiðlarnir eru hugsanlega að tengjast nánari böndum á ný eftir hrunið. Þetta er meðal annars tilgáta sem þeir Þorbjörn Broddason og Ragnar Karlsson eru að vinna með í rannsókn sem þeir eru að vinna að á tengslum fjölmiðla og lýðræðis á lýðveldistímanum. Þetta er meðal þess sem kemur fram í umræðuþættinum „Hvað einkennir íslenskt lýðræði“ sem þeir Vilhjálmur Árnason og Ævar Kjartansson stjórna á rás 1 á Ríkisútvarpinu og var útvarpað á dögunum þar sem Þorbjörn og Ragnar voru gestir. Hlusta á þáttinn hér
Lesa meira
IFJ setur um vefsíðu um öryggismál blaðamanna

IFJ setur um vefsíðu um öryggismál blaðamanna

Alþjóðasamband blaðamanna (IFJ) hefur opnað vefsíðu sem tileinkuð er baráttunni fyrir öryggi og vernd fjölmiðlafólks. Á síðunni er safnað saman á einn stað upplýsingum um allar aðgerðir sem IFJ stendur fyrir til að berjast fyrir öryggi blaðamanna og gegn aðgerðarleysi stjórnvalda þegar fjölmiðlar verða að skotmarki ofbeldis og kúgunar. „Blaðamenn sem starfa víða á átakasvæðum í heiminum - og þar er um að ræða hundruð blaðamanna, ritstjóra og aðstoðarfólk fjölmiðla - standa daglega frammi fyrir hótunum, pyntingum og jafnvel dauða einfaldlega vegna þess að þeir eru að vinna vinnuna sína,“ segir Jim Boumelha forseti IFJ. „Alþjóðasamtök blaðamanna leika nú lykilhlutverk í að reyna að vernda líf og limi blaðamanna út um allan heim. Það að setja upp þessa vefsíðu um öryggismál er nýr kafli í þessu hlutverki samtakanna og síðan er mikilvægt hjálpartæki fyrir blaðamenn í að vega og meta áhættu, auka meðvitund um hættur og veita ráðgjöf og þjálfun og skapa þannig menningu sem berst gegn aðgerðarleysi stjórnvalda þegar ofsóknir gegn fjölmiðlum er annars vegar,“ segir Boumelha einnig. Sjá vefsíðuna hér.
Lesa meira
Blaðamenn fái sérstaka vernd í lögum

Blaðamenn fái sérstaka vernd í lögum

Norska Blaðamannafélagið hefur sent bréf til dómsmálaráðherra og réttarfarsnefndar þar sem óskað er eftir því að blaðamenn og ritstjórnir njóti sérstakrar verndar gagnvart ofbeldi og hótunum. Í bréfinu segir að ástæða sé til að hafa áhyggjur af vaxandi tilhneigingu til valdbeitingar og hótana gagnvart ritstjórnum í því skyni að koma í veg fyrir umfjöllun um tiltekin mál. Bendir Blaðamannafélagið á að slíkar hótanir gagnvart tjáningarfrelsinu beri að taka mjög alvarlega. Fram kemur hjá Blaðamannafélaginu að ástæða sé til að víkka út ákvæði í hengingarlögum sem veiti einstökum starfsstéttum sérstaka vernd gagnvart ofbeldi og hótunum, þannig að það nái til ritstjórna og blaðamanna. Slík ráðstöfun myndi að sögn félagsins vera í samræmi við það sem bæði Hæstiréttur og ríkisögmaður hafa áður sagt að ritstjórnir þyrftu á að halda. Sjá einnig hér
Lesa meira
Ályktanir IFJ á rafrænu formi

Ályktanir IFJ á rafrænu formi

"Þeim ögrunum og áskorunum sem blaðamenn og starfsmenn fjölmiðla standa frammi fyrir í dag um allan heim verður aðeins mætt með samstilltu átaki fagfélaga þvert á landamæri og á milli heimsálfa. Slíkt átak felur í sér að búa til samstöðu um nýja sýn á hlutverk stéttafélaga og réttindi blaðamanna á stafrænum tímum.“ Þannig hefst ein af ályktunum sem samþykktar voru á heimsþingi Alþjóðasambands blaðamanna sem haldið var í Dublin á Írlandi í byrjun júní sl. Þessi tiltekna ályktun er um framtíð Alþjóðasamtakanna en gríðarlegur fjöldi ályktana var samþykktur á þinginu ogfrá og með þessari viku er hægt að skoða ályktanirnar á rafrænu formi á vef Alþjóðasambandsins. Sjá hér
Lesa meira
Gæði selja á Ítalíu

Gæði selja á Ítalíu

Þeir sem áhyggjur hafa af því að gæðablaðamennska eigi ekki upp á pallborðið í samtímanum þar sem skemmtiefni og afþreying eru í algleymingi (þó vissulega sé til gæðaskemmtiefni og afþreying) ættu að kynna sér söguna á bak við hið fjögurra ára gamla ítalska blað, Il Fatto Quotidiano, eða Staðreyndir dagsins eins og það heitir á íslensku. Þar hefur lítill hópur blaðamanna, í kringum 20 manns, náð að byggja upp blað sem sló í gegn og nýtur gríðarlegrar velgengni, aðallega vegna þess að blaðið byggir á vönduðum vinnubrögðum og blaðamenn sem þekktir eru fyrir rannsóknarblaðamennsku og áreiðanleika standa að baki blaðinu. Blaðið þiggur ekki opinbera styrki eins og flestir fjölmiðlar á Ítalíu og hefur ekki fengið til liðs við sig fjársterka fjárfesta sem tryggir óhæði þess gagnvart fjármálaöflum. Blaðið hins vegar selst eins og heitar lummur, jafnt í lausasölu sem áskrift og umsvif þess á netinu, þar sem hægt er að kaupa blaðið í pdf útgáfu, eru umtalsverð. Sjá meira hér
Lesa meira
Miklu fleiri fréttir jákvæðar en neikvæðar hjónabandi samkynhneigðra í BNA

Miklu fleiri fréttir jákvæðar en neikvæðar hjónabandi samkynhneigðra í BNA

Hæstiréttur Bandaríkjanna úrskurðaði á dögunum sem kunnugt er að samkynhneigðir geti í raun gegnið í hjónaband og þannig var snúið við niðurstöðu sem fram hafði komið í nokkrum ríkjum BNA. Á tímabilinu sem Hæstiréttur var með málið til meðferðar og umfjöllunar birtust mun fleiri fréttir sem voru jákvæðar gagnvart því að samkynhneiðgðir gætu gengið í hjónaband en fréttir sem voru neikvæðar gagnvart því. Þetta kemur fram í nýlegri könnun frá PEW rannsóknarstofnuninni. Fréttir þar sem fullyrðingar sem voru fylgjandi hjónabandi samkynhneigðra voru áberandi voru 5 sinnum fleiri en fréttir með fullyrðingum þar sem slíkum hjónaböndum var andmælt. Í flestum þeim fréttum sem fjölluðu jákvætt um hjónabönd samkynhneigðra var vísatð til borgaralegra réttinda fólks. Sjá meira hér
Lesa meira
Focus, frettabréf EFJ

Focus, frettabréf EFJ

Focus, fréttabréf Evrópusambands blaðamanna er komið út í rafrænu formi. Þar er fjallað um ýmis mál sem brenna á blaða- og fréttmönnum í Evrópu, m.a. hugmyndir um að loka ríkisútvarpinu á Grikklandi og hvaða hugmyndir um hlutverk almannaútvarp slíkar tillögur endurspegla. Þá er fjallað um ástandið í Tyrklandi og víðar í löndum álfunnar. Eitt af því sem fjallað er um, er nýleg ráðstefna blaða- og fréttamanna um merkingu hugtaksins fjölbreytni í fjölmiðlum, og því velt upphvort fjölbreytnin eigi rót sína í fréttunum sjálfum og ritstjórnarefninu eða hvort fjölbreytnin eig upptök sín í áheyrendum eða lensendahópi miðlanna. Sjá fréttabréf hér
Lesa meira
Dagblöð mikilvæg aldamótakynslóðinni

Dagblöð mikilvæg aldamótakynslóðinni

Þrátt fyrir þá almennu trú að fólk undir þrítugu lesi ekki lengur blöð og sé að yfirgefa hefðbundnar vefsíður og noti þess í stað hin ýmsu snjalltæki, s.s. spjaldtölvur og síma, þá sýna nýjar athuganir á vegum Samtaka bandarískra dagblaða (Newspaper Association of America's) að dagblaðið er enn mikilvæg uppspretta upplýsinga fyrir “aldamótakynslóðina”. Um 57% 18-34 ára fólks í Bandaríkjunum lesa dagblað að einhverju marki í hverri viku annað hvort prentútgáfu eða dagblað á netinu. “Það er engin spurning að unga fólkið er mun virkara en aðrir á stafrænu miðlunum og notar þá til að afla upplýsinga sem það telur sig varða. Hins vegar eru dagblöðin áfram mikilvæg og þau hafa þróast og fundið leiðir til að verða aðgengilegri ungu fólki á stafrænu formi,” segir Jim Conaghan hjá Samtökum bandarískra dagblaða. Sjá meira hér
Lesa meira
Rupert Murdoch

Engin auðmýkt lengur hjá Murdoch

Tveimur árum eftir að fjölmiðlabaróninn Rupert Murdoch kom fram fyrir almenning og talaði af auðmýkt um þátt fyrirtækisins í símahlerun hjá unglngsstúlkunni Milly Dowler sem hafði verið myrt, hafa nú verið birtar hleranir eða leynilegar upptökur af hneykslanlegum ummælum Murdochs sjálfs. Á fundum sem hann hefur átt með starfsmönnum ýmissa fjölmiðla sinna er tónninn hj´ahonum allt annað en auðmjúkur varðandi hneykslismálin sem fyritæki hans hafa flækst í. Hann talar þar um vanhæfi lögreglu og pólitískar ofsóknir frá hægri og frá vinstri gegn fyrirtækinu og gefur til kynna að vel komi til greina að ná fram einhvers konar hefndum. Fleiri en ein upptaka mun vera til af þessu en í gær voru birtar útskriftir af þessum upptökum í heild sinni í Exaro News. Sjá einnig hér
Lesa meira
Frá mótmælunum í Egyptalandi

IFJ biður blaðamenn í Egyptalandi að sýna varúð

Alþjóðasamband blaðamanna,IFJ, hefur fordæmt morðið á egypska blaðamanninum Salah Eddin Hassan í mótmælum í Port Said sl. föstudag. Hassan sem var 38 ára vann fyrir staðarblaðið Shaab Misr. Hann var drepinn með heimatilbúinni sprengju  þegar hann var að dekka mótmælin gegn Muhamed Morsi forseta. „Við hörmum dauða kollega okkar sem var drepinn í fullkomnu tilgangsleysi þegar hann var að uppfylla faglegar skyldur sínar sem blaðamaður,“ segir Jim Boumelha forseti IFJ. Hann segir ennfremur: „Hassan, sem skilur eftir sig konu og tvö börn, var staðfastur blaðamaður, sem var á staðnum til að greina frá mótmælunum. Þeir sem eru ábyrgir fyrir dauða hans verða að mæta réttvísinni og standa ábyrgir gerða sinna.“ Alþjóðasambandið hefur hvatt blaðamenn sem starfa í Egyptalandi til að sýna sérstaka varkárni í störfum sínum. „Við höfum vaxandi áhyggjur af miklu ofbeldi í Egyptalandi,“ sagði Boumelha. Sjá einnig hér
Lesa meira