Fréttir

EFJ og IFJ krefjast aukins jafnréttis kynjanna

EFJ og IFJ krefjast aukins jafnréttis kynjanna

Evrópusamband blaðamanna tók þátt í alþjóðlegum baráttudegi kvenna í gær, 8. mars, með því að vekja sérstaka athygli á hugrekki blaðakvenna víða um Evrópu og lýsa yfir eindreginni samstöðu með baráttu Alþjóðasambands blaðamanna (IFJ) um aukin áhrif kvenna í forustu stéttafélaga og fjölmiðlafyrirtækjum og og stofnunum . Bedir EFJ á að í nýlegri skýrslu Jafnréttisstofu Evrópu hafi komið í ljóa a𠠄til staðar væri viðvarandi ójafnrétti kynjanna í fjölmiðlageiranum, sem hægt væri að ráðast gegn með auknum hlut kvenna í ákvarðanatöku.“   Sjá einnig hér  
Lesa meira
Frumkvöðlastarfsemi í fjölmiðlum verðlaunuð

Frumkvöðlastarfsemi í fjölmiðlum verðlaunuð

 Evrópusamband blaðamanna (EFJ)ásamt fleiri samtökum sem tengjast fjölmiðlun og útgáfu hafa lýst eftir umsóknum um frumkvöðlaverðlaun í fjölmiðlun, verðlaun sem kallast „iMinds Press for More Award“. Þessi verðlaun verða afhent í Brussel á alþjóðlegum degi fjölmiðlafrelsis þann 3. maí næstkomandi og nemur verðlaunafjárupphæðin 10 þúsund evrum. EFJ hefur yfir að ráða rétti til að koma með 10 tilnefningar, en verðlaunin snúast um að heiðra frumkvöðlaverkefni sem nú eru í gangi á sviði fjölmiðlunar. Þessi verkefni þurfa að vera frumleg nýsköpun, sem stuðlar að bættum vinnubrögðum í blaðamennsku og tryggir þannig tjáningarfrelsi sem einkennist af yfirvegun og jafnvægi. Sérstaklega er horft til nýsköpunar í aðferðum og vinnubrögðum við rannsóknarblaðamennsku, uppbyggingu samskiptaneta blaðamanna, eflingu samskipta milli borgara og kynningu nýrra viðskiptahugmynda. Umsóknarfrestur um þessi frumkvöðlaverðlaun er til 18 mars og er sótt um á sérstöku eyðublaði. Eyðublaðið og frekari upplýsingar má nálgast hér.  
Lesa meira
Mynd ársins á Sigtryggur Ari Jóhannsson

Myndir ársins 2014

Mynd árins  að mati dómnefndar Myndar ársins sýningar Blaðaljósmyndarafélags Íslands á Sigtryggur Ari Jóhannsson. Sýning Blaðaljósmyndarfélagsins sem opnuð var um helgina stendur nú yfir í Gerðarsafni í Kópavogi.  Í rökstuðningitómnefndar um mynd ársins, sem raunar var einnig valin fréttamynd ársins segir:    „Þessi mynd getur ekki annað en hreyft við áhorfandanum. Viðfangsefnið ber traust til ljósmyndarans svo úr verður persónuleg túlkun á aðstæðum. Maðurinn er veikbyggður  og viðkvæmur en augnaráð hans er grípandi og sterkt. Tómleikinn í kringum hann sýnir þann fábrotna raunveruleika og mikla óöryggi sem hælisleitendur á Íslandi búa við. Myndin minnir okkur á þær áskoranir sem hælisleitendur mæta í þeim löndum sem þeir leita til og hefur myndefnið því einnig skírskotun til alþjóðlegs vandamáls.“ Sjá allar myndir og frekari umfjöllun  hér  
Lesa meira
Vinningshafar í Gerðarsafni í dag

Blaðamannaverðlaun fyrir 2014 voru afhent í dag

Blaðamannaverðlaun Blaðamannafélagsins voru afhent í Gerðarsafni í Kópavogi nú síðdegis. Verðlaunahafar voru þau Ólöf Skaftadóttir fyrir viðtal ársins, Helgi Seljan fyrir rannsóknarblaðamennsku ársins, ritstjórn mbl.is fyrir umfjöllun ársins, og þeir Jón Bjarki Magnússon og Jóhann Páll Jóhannsson hlut blaðamannaverðlaun ársins. Mynd ársins tók Sigtryggur Ari Jóhannsson. Hér á eftir má lesa bæði tilnefningar dómnefndar og rökstuðning fyrir verlaunaveitingunum. Viðtal ársins 2014 Tilnefnd til verlauna fyrir viðtal ársins eru: Indíana Hreinsdóttir, DV. Viðtal við Stefán Hilmarsson. Viðtalið er gott dæmi um hvernig hægt er að skrifa áhugavert viðtal sem sýnir þekktan einstakling í nýju og persónulegu ljósi og segja frá ævi hans og erfiðleikum á áreynslulausan hátt. Júlía Margrét Alexandersdóttir, Morgunblaðinu. Viðtal við Þorstein J. Vilhjálmsson. Viðtalið er einlægt og afar persónulegt og nær Júlía að draga fram persónuna og sögu Þorsteins á afar næman hátt. Ólöf Skaftadóttir, Fréttablaðinu. Viðtal við tvíburabræðurna Kára og Halldór Auðar- og Svanssyni. Viðtalið er einstaklega hispurslaust um baráttu þeirra bræðra við geðræna sjúkdóma. Þrátt fyrir erfitt umfjöllunarefni nær Ólöf að viðhalda léttleika í gegnum viðtalið en gefur samt ekkert eftir í raunsönnum lýsingum.   Verðlaunin hlýtur Ólöf Skaftadóttir, Fréttablaðinu fyrir áhrifarík viðtal við tvíburabræðurna Kára og Halldór Auðar- og Svanssyni. Í viðtalinu lýsa bræðurnir reynslu sinni af geðsjúkdómum af mikilli hreinskilni, annars vegar tólf ára baráttu Kára við að lifa við geðklofa og hins vegar geðrofi Halldórs í kjölfar kannabisneyslu.  Með þessu viðtalin nær Ólöf að draga fram mikilvægar raddir þeirra bræðra til að draga úr fordómum gegn geðsjúkdómum sem best næst fram með því að tala við þá sem sjálfir hafa lifað með sjúkdómnum. Fordómaleysi Ólafar og virðing gagnvart viðfangsefninu skín í gegn um textann og  lýsir það sér ekki síst í léttleikanum sem einkennir viðtalið, en nær jafnframt að lýsa erfiðleikum við að hætta á geðlyfjum, að takast á við breyttar aðstæður sem fylgja sjúkdómnum og breyttri lífssýn þeirra bræðra. Ekki er hvað síst óvenjulegt að lesa jafn hreinskilið viðtal við stjórnmálamann um persónuleg málefni og þetta viðtal er.  . Rannsóknarblaðamennska ársins   Tilnefnd til rannsóknarblaðamennsku ársins 2014 eru: Garðar Örn Úlfarsson Fréttablaðinu og Þorbjörn Þórðarson Stöð 2. Umfjöllun um flugslysið við Akureyri. Garðar Örn og Þorbjörn birtu myndband sem varpaði nýju ljósi á aðdraganda slyssins. Í kjölfarið fylgdu fréttir sem drógu fram í dagsljósið umgengni og viðhorf forsvarsmanna flugfélagsins til sjúkraflutninganna og hvernig yfirvöld hlupu undir bagga með flugfélaginu. Helgi Seljan, Kastljósi. Umfjöllun um MS og uppruna vöru. Í umfjöllun sinni uppljóstraði Helgi hvernig MS, sem og önnur fyrirtæki, leyna því fyrir almenningi þegar þau blanda erlendri vöru við íslenska. Einnig benti hann á að embættismaður í ráðuneyti landbúnaðar hefur setið beggja vegna borðsins í mörgum málum sem snerta samkeppni og landbúnað. Hrund Þórsdóttir, Stöð 2. Umfjöllun um lyfjamistök. Hrund kafaði ofan í andlát eldri manns sem lést rúmri viku eftir að honum var gefinn rangur lyfjaskammtur á heilbrigðisstofnun. Hrund leitaði víða fanga í eftirfylgni með málinu, m.a. með fordæmalitlu viðtali við lækni mannsins sem undraðist afstöðu landlæknis en einnig með mjög skýrri almennri umfjöllun um lyfjamistök, viðbrögð við þeim og hvernig hægt er að takmarka slík mistök. Verðlaun fyrir rannsóknarblaðamennsku ársins 2014 hlýtur Helgi Seljan. Í umfjöllun Helga Seljan um uppruna vöru og stöðu búvörumála í landinu sýndi hann fram á hvernig sérhagsmunir bænda, MS og innlendra kjötvinnslna eru varðir á kostnað neytenda. Hann gróf upp hvernig MS, sem og aðrir framleiðendur, blanda erlendri búvöru við þá íslensku og selja án upprunamerkinga – svo hún virðist íslensk. Helgi lét ekki fregnir af írska smjörinu sem blandað var innlendri vöru nægja, heldur gróf dýpra og lengra. Í ljós kom að írska smjörið í vinsælum innlendum mjólkurvörum var ekki einsdæmi. Helgi rannsakaði málið frá mörgum hliðum og dró fram í dagsljósið að embættismaður landbúnaðarmála hefði setið beggja vegna borðs og tæki ákvarðanir sem túlka megi í hag fyrrum vinnuveitenda og þessara sérhagsmuna. Umfjöllun Helga sýnir þá veiku stöðu sem neytendur eru í þegar kemur að uppruna vöru, landbúnaðarvörum almennt og eftirliti með innlendum framleiðendum.  Besta umfjöllun ársins 2014 Ingibjörg Dögg Kjartansdóttir, DV. Umfjöllun um Alzheimer og heilabilun. Með hreinskilnum og áhrifaríkum frásögnum fengu lesendur skýra sýn á það hvernig erfiður og algengur sjúkdómur snertir sjúklingana og fjölskyldur þeirra. Ritstjórn mbl.is. Umfjöllun um stórbrunann í Skeifunni. Ritstjórn mbl.is nýtti sér alla helstu kosti netsins og færði lesendum skjótt, vel og með myndrænum hætti fréttir af bruna í Skeifunni frá ýmsum sjónarhornum og um leið og þær gerðust. Sigurður Mikael Jónsson. DV. Umfjöllun um neytendamál. Með frumlegri nálgun og myndrænni framsetningu tókst honum að varpa ljósi á ólíkar hliðar daglegrar neyslu sem hefur mikil áhrif á kjör fólks og heilsu.   Verðlaun fyrir bestu umfjöllun ársins hlýtur ritstjórn mbl.is Netið, snjallsímar og samskiptamiðlar hafa breytt fréttamiðlun. Kröfurnar eru að fólk fái fréttirnar eins fljótt og kostur er, helst um leið og þær gerast en án þess þó að það komi niður á gæðum.  Þegar stórbruni varð í Skeifunni síðasta sumar sýndi ritstjórn mbl.is vel hvernig nýta má alla helstu kosti netsins og tækninnar til að færa lesendum skýra mynd af því sem var að gerast með hnitmiðuðum texta, myndum og myndskeiðum frá dróna úr lofti.  Fréttaflutningurinn byrjaði fljótlega eftir að fyrst varð vart við brunann og stóð yfir þar til yfir lauk. Greint var frá brunanum og áhrifum hans frá fjölmörgum sjónarhornum og með góðu samspili blaðamanna og ljósmyndara sem auk þess notuðust við myndir af vettvangi frá almenningi. Niðurstaðan var heildstæð og ítarleg umfjöllun sem minnti rækilega á hvað netið er öflugur fréttamiðill.   Blaðamannaverðlaun ársins 2014 Tilnefnd til Blaðamannaverðlauna ársins eru :  Jóhann Páll Jóhannsson og Jón Bjarki Magnússon  DV. Umfjöllun um lekamálið.Jóhann Páll og Jón Bjarki  sýndu einstakt þolgæði við að upplýsa allar hliðar lekamálsins svokallaða og fylgdu málinu vel eftir, þrátt fyrir mikið mótlæti og andstöðu ráðherra , sem endaði með afsögn hans. Magnús Halldórsson, Ægir Þór Benediktsson og Þórður Snær Júlíusson  Kjarnanum. Umfjöllun  um sölu Landsbankans á hlut í Borgun. Kjarnamenn drógu fram mikilsverðar upplýsingar um kaupin og hvernig kaupendur voru valdir á bak við luktar dyr og settu það fram á auðskiljanlegan hátt fyrir lesendur. Viktoría Hermannsdóttir, Fréttablaðinu. Umfjöllun um innflytjendur og áhrifarík viðtöl. Fyrir að varpa ljósi á þær hindranir sem innflytjendur verða fyrir á Íslandi þegar þeir vilja öðlast réttindi til að starfa samkvæmt menntun sinni. Einnig birtust á árinu áhrifarík viðtöl Viktoríu við einstaklinga sem hafa þurft að takast á við erfiðleika.   Blaðamannaverðlaun ársins 2014 hljóta Jóhann Páll Jóhannsson og Jón Bjarki Magnússon. Einurð þeirra í lekamálinu svokallaða varð til þess að það skaut ekki aðeins upp kollinum um stundarsakir. Þeir fylgdu málinu vel eftir, komu stöðugt fram með nýjar hliðar þess og héldu fréttaflutningnum gangandi af festu. Umfjöllunin smitaðist yfir í aðra fjölmiðla og umboðsmaður Alþingis tók einn anga málsins upp að eigin frumkvæði. Ráðuneytisskipan landsins var breytt, aðstoðarmaður ráðherra játaði á sig lekann og að lokum varð innanríkisráðherra Hanna Birna Kristjánsdóttir að segja af sér ráðherradómi. Enn teygir lekamálið anga sína út í samfélagið með  ýmsum hætti.  Þrátt fyrir harða gagnrýni og ótal tilraunir til þöggunar stóðu blaðamennirnir í ístaðinu. Þolgæði þeirra varð til þess að ljósi var varpað á það sem raunverulega gerðist á bakvið tjöldin. Það minnir á mikilvægi gagnrýninnar blaðamennsku og að trúnaður blaðamanna sé fyrst og síðast við almenning í landinu og engan annan.         
Lesa meira
Blaðamannaverðlaun afhent á laugardag

Blaðamannaverðlaun afhent á laugardag

Afhending Blaðamannaverðlauna fyrir árið 2014 verður í Gerðarsafni í Kópavogi á laugardaginn kl 15:00 og samhliða verða veitt verðlaun Blaðaljósmyndarafélagsins fyrir Myndir ársins og samnefnd sýning á ljósmyndum blaðaljósmyndara verður opnuð. Þá opnar á neðri hæð safnsins sýning á myndum Ragnars Th. Sigurðssonar, ljósmyndara og Norðurheimskautsfara, sem hann nefnir Ljósið Dómnefnd Blaðamannaverðlaunanna hefur komið sér saman um þrjár tilnefningar í fjórum flokkum verðlaunanna og  verður einn vinninghafi valinn í hverjum flokki. Tilnefningar dómnefndarinnar þessar:Viðtal ársins Indíana Hreinsdóttir, DV. Viðtal við Stefán Hilmarsson. Viðtalið er gott dæmi um hvernig hægt er að skrifa áhugavert viðtal sem sýnir þekktan einstakling í nýju og persónulegu ljósi og segja frá ævi hans og erfiðleikum á áreynslulausan hátt.  Júlía Margrét Alexandersdóttir, Morgunblaðinu. Viðtal við Þorstein J. Vilhjálmsson. Viðtalið er einlægt og afar persónulegt og nær Júlía að draga fram persónuna og sögu Þorsteins á afar næman hátt. Ólöf Skaftadóttir, Fréttablaðinu. Viðtal við tvíburabræðurna Kára og Halldór Auðar- og Svanssyni. Viðtalið er einstaklega hispurslaust um baráttu þeirra bræðra við geðræna sjúkdóma. Þrátt fyrir erfitt umfjöllunarefni nær Ólöf að viðhalda léttleika í gegnum viðtalið en gefur samt ekkert eftir í raunsönnum lýsingum.   Umfjöllun ársinsIngibjörg Dögg Kjartansdóttir, DV. Umfjöllun um Alzheimer og heilabilun. Með hreinskilnum og áhrifaríkum frásögnum fengu lesendur skýra sýn á það hvernig erfiður og algengur sjúkdómur snertir sjúklingana og fjölskyldur þeirra. Ritstjórn mbl.is. Umfjöllun um stórbrunann í Skeifunni. Ritstjórn mbl.is nýtti sér alla helstu kosti netsins og færði lesendum skjótt, vel og með myndrænum hætti fréttir af bruna í Skeifunni frá ýmsum sjónarhornum og um leið og þær gerðust. Sigurður Mikael Jónsson. DV. Umfjöllun um neytendamál. Með frumlegri nálgun og myndrænni framsetningu tókst honum að varpa ljósi á ólíkar hliðar daglegrar neyslu sem hefur mikil áhrif á kjör fólks og heilsu. Blaðamannaverðlaun ársinsJóhann Páll Jóhannsson og Jón Bjarki Magnússon, DV. Umfjöllun um lekamálið. Jóhann Páll og Jón Bjarki sýndu einstakt þolgæði við að upplýsa allar hliðar lekamálsins svokallaða og fylgdu málinu vel eftir, þrátt fyrir mikið mótlæti og andstöðu ráðherra sem endaði með afsögn hans. Magnús Halldórsson, Ægir Þór Eysteinsson og Þórður Snær Júlíusson, Kjarnanum. Umfjöllun um sölu Landsbankans á Borgun. Kjarnamenn drógu fram mikilsverðar upplýsingar um kaupin og hvernig kaupendur voru valdir á bak við luktar dyr og settu það fram á auðskiljanlegan hátt fyrir lesendur. Viktoría Hermannsdóttir, Fréttablaðinu. Umfjöllun um innflytjendur og áhrifarík viðtöl. Fyrir að varpa ljósi á þær hindranir sem innflytjendur verða fyrir á Íslandi þegar þeir vilja öðlast réttindi til að starfa samkvæmt menntun sinni. Einnig birtust á árinu áhrifarík viðtöl Viktoríu við einstaklinga sem hafa þurft að takast á við erfiðleika.   Rannsóknarblaðamennska ársinsGarðar Örn Úlfarsson Fréttablaðinu og Þorbjörn Þórðarson Stöð 2. Umfjöllun um flugslysið við Akureyri. Garðar Örn og Þorbjörn birtu myndband sem varpaði nýju ljósi á aðdraganda slyssins. Í kjölfarið fylgdu fréttir sem drógu fram í dagsljósið umgengni og viðhorf forsvarsmanna flugfélagsins til sjúkraflutninganna og hvernig yfirvöld hlupu undir bagga með flugfélaginu. Helgi Seljan, Kastljósi. Umfjöllun um MS og uppruna vöru. Í umfjöllun sinni uppljóstraði Helgi hvernig MS, sem og önnur fyrirtæki, leyna því fyrir almenningi þegar þau blanda erlendri vöru við íslenska. Einnig benti hann á að embættismaður í ráðuneyti landbúnaðar hefur setið beggja vegna borðsins í mörgum málum sem snerta samkeppni og landbúnað. Hrund Þórsdóttir, Stöð 2. Umfjöllun um lyfjamistök. Hrund kafaði ofan í andlát eldri manns sem lést rúmri viku eftir að honum var gefinn rangur lyfjaskammtur á heilbrigðisstofnun. Hrund leitaði víða fanga í eftirfylgni með málinu, m.a. með fordæmalitlu viðtali við lækni mannsins sem undraðist afstöðu landlæknis en einnig með mjög skýrri almennri umfjöllun um lyfjamistök, viðbrögð við þeim og hvernig hægt er að takmarka slík mistök. Eins og áður segir verður árleg sýning blaðaljósmyndara opnuð við þetta tækifæri og verðlaun veitt fyrir bestu myndirnar.  Á sýningunni eru að þessu sinni 116 myndir sem valdar hafa verið af dómnefnd úr 905 myndum 24. blaðaljósmyndara.   Veitt verða verðlaun í níu flokkum, þ.e. fyrir Mynd ársins og fyrir bestu fréttamyndina, umhverfismyndina, portrett myndina, íþróttamyndina, daglegt líf, tímaritamynd, myndröð ársins og myndskeið ársins. Bók með bestu blaðaljósmyndum ársins 2014 kemur út við þetta tækifæri og verður kynnt á sýningunni.  
Lesa meira
London höfuðborg erlendra fréttaritara

London höfuðborg erlendra fréttaritara

Út er komin ný bók um erlenda fréttaritara í Evrópu og var bókin kynn á blaðamannaklúbbnum í Brussel á dögunum.  Bókinni er ritstýrt af Georgios Terzis og nær efnið til 27 landa og um 6.600 skráðra blaðamanna sem vinna sem erlendir fréttaritarar.  Fram kemur að London er höfuðborg erlendra fréttaritara en langsamlega flestir erlendir fréttaritarar starfa þar og jafnframt eru þeir flestir í Bretlandi. Nokkuð langt á eftir kemur svo Brussel og Belgía.  Sjá einnig hér
Lesa meira
Tilnefningar til Blaðamannaverðlauna 2014

Tilnefningar til Blaðamannaverðlauna 2014

 Dómnefnd Blaðamannaverðlauna BÍ hefur tilkynnt um tilnefningar sínar til Blaðamannaverðlauna fyrir árið 2014. Eins og áður eru tilnefningarnar í fjórum flokkum, og þrjár tilnefningar í hverjum flokki.  Tilkynnt verður á laugardaginn kemur, þann 28. febrúar um það hverjir vinningshafar í hverjum flokki verða samhliða því að viðurkenningar Blaðaljósmyndarafélags Íslands verða kynntar og sýningin Myndir ársins verður opnuð.   Tilnefningar dómnefndar eru eftirfarandi:   Viðtal ársinsIndíana Hreinsdóttir, DV. Viðtal við Stefán Hilmarsson. Viðtalið er gott dæmi um hvernig hægt er að skrifa áhugavert viðtal sem sýnir þekktan einstakling í nýju og persónulegu ljósi og segja frá ævi hans og erfiðleikum á áreynslulausan hátt. Júlía Margrét Alexandersdóttir, Morgunblaðinu. Viðtal við Þorstein J. Vilhjálmsson. Viðtalið er einlægt og afar persónulegt og nær Júlía að draga fram persónuna og sögu Þorsteins á afar næman hátt. Ólöf Skaftadóttir, Fréttablaðinu. Viðtal við tvíburabræðurna Kára og Halldór Auðar- og Svanssyni. Viðtalið er einstaklega hispurslaust um baráttu þeirra bræðra við geðræna sjúkdóma. Þrátt fyrir erfitt umfjöllunarefni nær Ólöf að viðhalda léttleika í gegnum viðtalið en gefur samt ekkert eftir í raunsönnum lýsingum.   Umfjöllun ársins Ingibjörg Dögg Kjartansdóttir, DV. Umfjöllun um Alzheimer og heilabilun. Með hreinskilnum og áhrifaríkum frásögnum fengu lesendur skýra sýn á það hvernig erfiður og algengur sjúkdómur snertir sjúklingana og fjölskyldur þeirra.  Ritstjórn mbl.is. Umfjöllun um stórbrunann í Skeifunni. Ritstjórn mbl.is nýtti sér alla helstu kosti netsins og færði lesendum skjótt, vel og með myndrænum hætti fréttir af bruna í Skeifunni frá ýmsum sjónarhornum og um leið og þær gerðust.  Sigurður Mikael Jónsson. DV. Umfjöllun um neytendamál. Með frumlegri nálgun og myndrænni framsetningu tókst honum að varpa ljósi á ólíkar hliðar daglegrar neyslu sem hefur mikil áhrif á kjör fólks og heilsu.   Blaðamannaverðlaun ársins Jóhann Páll Jóhannsson og Jón Bjarki Magnússon, DV. Umfjöllun um lekamálið. Jóhann Páll og Jón Bjarki sýndu einstakt þolgæði við að upplýsa allar hliðar lekamálsins svokallaða og fylgdu málinu vel eftir, þrátt fyrir mikið mótlæti og andstöðu ráðherra sem endaði með afsögn hans.  Magnús Halldórsson, Ægir Þór Eysteinsson og Þórður Snær Júlíusson, Kjarnanum. Umfjöllun um sölu Landsbankans á Borgun. Kjarnamenn drógu fram mikilsverðar upplýsingar um kaupin og hvernig kaupendur voru valdir á bak við luktar dyr og settu það fram á auðskiljanlegan hátt fyrir lesendur.  Viktoría Hermannsdóttir, Fréttablaðinu. Umfjöllun um innflytjendur og áhrifarík viðtöl. Fyrir að varpa ljósi á þær hindranir sem innflytjendur verða fyrir á Íslandi þegar þeir vilja öðlast réttindi til að starfa samkvæmt menntun sinni. Einnig birtust á árinu áhrifarík viðtöl Viktoríu við einstaklinga sem hafa þurft að takast á við erfiðleika.   Rannsóknarblaðamennska ársinsGarðar Örn Úlfarsson Fréttablaðinu og Þorbjörn Þórðarson Stöð 2. Umfjöllun um flugslysið við Akureyri. Garðar Örn og Þorbjörn birtu myndband sem varpaði nýju ljósi á aðdraganda slyssins. Í kjölfarið fylgdu fréttir sem drógu fram í dagsljósið umgengni og viðhorf forsvarsmanna flugfélagsins til sjúkraflutninganna og hvernig yfirvöld hlupu undir bagga með flugfélaginu. Helgi Seljan, Kastljósi. Umfjöllun um MS og uppruna vöru. Í umfjöllun sinni uppljóstraði Helgi hvernig MS, sem og önnur fyrirtæki, leyna því fyrir almenningi þegar þau blanda erlendri vöru við íslenska. Einnig benti hann á að embættismaður í ráðuneyti landbúnaðar hefur setið beggja vegna borðsins í mörgum málum sem snerta samkeppni og landbúnað. Hrund Þórsdóttir, Stöð 2. Umfjöllun um lyfjamistök. Hrund kafaði ofan í andlát eldri manns sem lést rúmri viku eftir að honum var gefinn rangur lyfjaskammtur á heilbrigðisstofnun. Hrund leitaði víða fanga í eftirfylgni með málinu, m.a. með fordæmalitlu viðtali við lækni mannsins sem undraðist afstöðu landlæknis en einnig með mjög skýrri almennri umfjöllun um lyfjamistök, viðbrögð við þeim og hvernig hægt er að takmarka slík mistök.      
Lesa meira
Umsóknarfrestur um námsdvöl í Berlín framlengdur
Tilkynning

Umsóknarfrestur um námsdvöl í Berlín framlengdur

Frjálsi háskólinn í Berlín hefur  auglýst eftir umsóknum um námsdvöl í Berlín fyrir reynda blaðamenn í Evrópu eða í Bandaríkjum. Umsóknarfrestur sem áður hafði verið auglýstur til 28. febrúar  hefur nú verið framlengdur til 31.mars 2015. Um er að ræða styrk til dvalar við Frjálsa háskólann eða Freie Universität. Blaðamenn geta fengið tækifæri til tveggja anna dvalar við Freie Universitaet á meðan þeir eru í leyfi frá stöðum sínum í heimalandinu. Prógrammið hefst í október 2015og stendur fram í júlí 2016. Einu skilyrðin sem uppfylla þarf er að viðkomandi sé starfandi blaðamaður og að hann hyggist vinna að fræðilegu verkefni á sviði blaðamennsku. Fjárhagslegi styrkurinn nemur um 1.500 evrum á mánuði en getur þó verið meiri eða minni eftir því hvers konar styrk er um að ræða.. Sjá frekari upplýsingar hér  
Lesa meira
Danskir miðlar stóðust prófið

Danskir miðlar stóðust prófið

Margar siðferðilegar og faglegar  spurningar komu upp í umfjöllun danskra miðla af ódæðisverkunum í Kaupmannahöfn. Þetta eru m.a. atriði sem snúa að upplýsinga- og almannaþjónustuhlutverki fjölmiðla annars vegar og hins vegar viðskipta og samkeppnisstjórnarmiðum miðlanna. Einnig eru þetta spurningar um það hvernig og að hve miklu leyti á að sannreyna heimildir og myndskeið sem koma fram í rauntíma - frásögn eða  því sem kallað er „braking news“.  Þessar spurningar eru danskir blaðamenn nú að ræða, en samhliða leggja þeir mat á umfjöllun miðla um framvindu málsins, en fraásagnir og fjölmiðlaumfjöllun var nánast viðstöðulaus í rauntíma.  Áhorfs og lestrartölur voru gríðarlega háar og  haft er eftir Poul Madsen aðalritsjtóra Extrablaðsins að þetta hafi veri𠠄villtasti tími sem hann hefur upplifa𓠠og  Mette Ösetergaard fréttaritstjóri TV2 sagði að þau „hefðu skrifað söguna um leið og hún gerðist“. Í það heila virðsit þó sem danskir miðlar hafi staðið sig vel í umfjöllun sinni og sýnt sig að vera vandaðir og faglegir  Sjá einnig hér  
Lesa meira
Fyrsta tölublað Stundarinnar komið út

Fyrsta tölublað Stundarinnar komið út

Fyrsta tölublað Stundarinnar er komið út. Blaðið er nú komið á helstu sölustaði þar sem hægt er að nálgast það í lausasölu og verið er að vinna í því að koma blaðinu til áskrifenda, en margir þeirra sem gerðust ásrkifendur í með framlagi í gegnum karolina Fund munu hafa sleppt að skrifa heimilsifang sitt og segja aðstandendur blaðsins á Facebook síðu sinni að verið sé að vinna í því máli.  Fréttavefur Stundarinnar, www.stundin.is, verður opnaður innan skamms.Uppsláttur blaðsins snýst um það sem kalla mætti framhaldslíf Lekamálsins og beinist athyglin að þróun mála inna lögreglunnar og því sem blaðið skilgreinir sem  „valdatafl í lögreglunni“.Stofnendur stundarinnar eru Stofnendur Stundarinnar eru:  Elín G. Ragnarsdóttir,  Heiða B. Heiðars,  Ingibjörg Dögg Kjartansdóttir,  Jón Ingi Stefánsson og  Jón Trausti Reynisson en þau hafa fengið til liðs við sig nokkra  blaðamenn sem m.a. störfuðu með þeim á DV.  Stefnuyfirlýsing stundarinnar var birt fyrir nokkrum vikum en hún er svohljóðandi: "Við tökum öll ákvarðanir byggt á þeim upplýsingum sem við fáum. Þessar ákvarðanir eru undirstaða farsældar samfélagsins og okkar sjálfra.Vald hefur áhrif á þær upplýsingar sem okkur eru veittar. Hagsmunaaðilar geta komist yfir fjölmiðlafyrirtæki og mótað fjölmiðla eftir sínum eiginhagsmunum í stað almannahagsmuna. Mörgum þykir þetta sjálfsagður réttur eiganda miðilsins á frjálsum markaði. Fyrir öfluga hagsmunaaðila getur það flokkast sem markaðskostnaður að beygja áherslur fjölmiðla í átt að hagsmunum eigenda til að hafa áhrif á sýn almennings.  Aðstandendur Stundarinnar eru hópur sem vill stofna nýjan, íslenskan fjölmiðil sem er undir áhrifum af almannavaldi og almannahagsmunum, en ekki afmörkuðu stjórnmála- eða fjármálavaldi. Við viljum biðja þig að taka þátt í því með okkur. Vertu valdið.“  
Lesa meira