Blaðamannaverðlaun afhent á laugardag

Afhending Blaðamannaverðlauna fyrir árið 2014 verður í Gerðarsafni í Kópavogi á laugardaginn kl 15:00 og samhliða verða veitt verðlaun Blaðaljósmyndarafélagsins fyrir Myndir ársins og samnefnd sýning á ljósmyndum blaðaljósmyndara verður opnuð. Þá opnar á neðri hæð safnsins sýning á myndum Ragnars Th. Sigurðssonar, ljósmyndara og Norðurheimskautsfara, sem hann nefnir Ljósið

Dómnefnd Blaðamannaverðlaunanna hefur komið sér saman um þrjár tilnefningar í fjórum flokkum verðlaunanna og  verður einn vinninghafi valinn í hverjum flokki. Tilnefningar dómnefndarinnar þessar:

Viðtal ársins
Indíana Hreinsdóttir, DV. Viðtal við Stefán Hilmarsson. Viðtalið er gott dæmi um hvernig hægt er að skrifa áhugavert viðtal sem sýnir þekktan einstakling í nýju og persónulegu ljósi og segja frá ævi hans og erfiðleikum á áreynslulausan hátt. 

Júlía Margrét Alexandersdóttir, Morgunblaðinu. Viðtal við Þorstein J. Vilhjálmsson. Viðtalið er einlægt og afar persónulegt og nær Júlía að draga fram persónuna og sögu Þorsteins á afar næman hátt.

Ólöf Skaftadóttir, Fréttablaðinu. Viðtal við tvíburabræðurna Kára og Halldór Auðar- og Svanssyni. Viðtalið er einstaklega hispurslaust um baráttu þeirra bræðra við geðræna sjúkdóma. Þrátt fyrir erfitt umfjöllunarefni nær Ólöf að viðhalda léttleika í gegnum viðtalið en gefur samt ekkert eftir í raunsönnum lýsingum.

 

Umfjöllun ársins
Ingibjörg Dögg Kjartansdóttir, DV. Umfjöllun um Alzheimer og heilabilun. Með hreinskilnum og áhrifaríkum frásögnum fengu lesendur skýra sýn á það hvernig erfiður og algengur sjúkdómur snertir sjúklingana og fjölskyldur þeirra.

Ritstjórn mbl.is. Umfjöllun um stórbrunann í Skeifunni. Ritstjórn mbl.is nýtti sér alla helstu kosti netsins og færði lesendum skjótt, vel og með myndrænum hætti fréttir af bruna í Skeifunni frá ýmsum sjónarhornum og um leið og þær gerðust.

Sigurður Mikael Jónsson. DV. Umfjöllun um neytendamál. Með frumlegri nálgun og myndrænni framsetningu tókst honum að varpa ljósi á ólíkar hliðar daglegrar neyslu sem hefur mikil áhrif á kjör fólks og heilsu.

Blaðamannaverðlaun ársins
Jóhann Páll Jóhannsson og Jón Bjarki Magnússon, DV. Umfjöllun um lekamálið. Jóhann Páll og Jón Bjarki sýndu einstakt þolgæði við að upplýsa allar hliðar lekamálsins svokallaða og fylgdu málinu vel eftir, þrátt fyrir mikið mótlæti og andstöðu ráðherra sem endaði með afsögn hans.

Magnús Halldórsson, Ægir Þór Eysteinsson og Þórður Snær Júlíusson, Kjarnanum. Umfjöllun um sölu Landsbankans á Borgun. Kjarnamenn drógu fram mikilsverðar upplýsingar um kaupin og hvernig kaupendur voru valdir á bak við luktar dyr og settu það fram á auðskiljanlegan hátt fyrir lesendur.

Viktoría Hermannsdóttir, Fréttablaðinu. Umfjöllun um innflytjendur og áhrifarík viðtöl. Fyrir að varpa ljósi á þær hindranir sem innflytjendur verða fyrir á Íslandi þegar þeir vilja öðlast réttindi til að starfa samkvæmt menntun sinni. Einnig birtust á árinu áhrifarík viðtöl Viktoríu við einstaklinga sem hafa þurft að takast á við erfiðleika.

 

Rannsóknarblaðamennska ársins
Garðar Örn Úlfarsson Fréttablaðinu og Þorbjörn Þórðarson Stöð 2. Umfjöllun um flugslysið við Akureyri. Garðar Örn og Þorbjörn birtu myndband sem varpaði nýju ljósi á aðdraganda slyssins. Í kjölfarið fylgdu fréttir sem drógu fram í dagsljósið umgengni og viðhorf forsvarsmanna flugfélagsins til sjúkraflutninganna og hvernig yfirvöld hlupu undir bagga með flugfélaginu.

Helgi Seljan, Kastljósi. Umfjöllun um MS og uppruna vöru. Í umfjöllun sinni uppljóstraði Helgi hvernig MS, sem og önnur fyrirtæki, leyna því fyrir almenningi þegar þau blanda erlendri vöru við íslenska. Einnig benti hann á að embættismaður í ráðuneyti landbúnaðar hefur setið beggja vegna borðsins í mörgum málum sem snerta samkeppni og landbúnað.

Hrund Þórsdóttir, Stöð 2. Umfjöllun um lyfjamistök. Hrund kafaði ofan í andlát eldri manns sem lést rúmri viku eftir að honum var gefinn rangur lyfjaskammtur á heilbrigðisstofnun. Hrund leitaði víða fanga í eftirfylgni með málinu, m.a. með fordæmalitlu viðtali við lækni mannsins sem undraðist afstöðu landlæknis en einnig með mjög skýrri almennri umfjöllun um lyfjamistök, viðbrögð við þeim og hvernig hægt er að takmarka slík mistök.

Eins og áður segir verður árleg sýning blaðaljósmyndara opnuð við þetta tækifæri og verðlaun veitt fyrir bestu myndirnar.  Á sýningunni eru að þessu sinni 116 myndir sem valdar hafa verið af dómnefnd úr 905 myndum 24. blaðaljósmyndara.   Veitt verða verðlaun í níu flokkum, þ.e. fyrir Mynd ársins og fyrir bestu fréttamyndina, umhverfismyndina, portrett myndina, íþróttamyndina, daglegt líf, tímaritamynd, myndröð ársins og myndskeið ársins. Bók með bestu blaðaljósmyndum ársins 2014 kemur út við þetta tækifæri og verður kynnt á sýningunni.