Fréttir

Fjármögnun BBC til skoðunar

Fjármögnun BBC til skoðunar

Samkvæmt fréttum í Bretlandi koma fram tillögur í skýrslu nefndar um fjármögnun BBC, breska ríkisútvarpsins,  þess efnis að  stofnunin afli sér í auknum mæli sértekna með markaðslegum aðferðum. Stjórnendur BBC hafa hins vegar neitað fréttum Sunday Times um helgina að einn af þeim kostum sem til skoðunar sé væri að taka upp áskriftargjöld í staðinn fyrir núverandi afnotagjald.  Nú stendur yfir endurskoðun á fjármögnun BBC en núverandi samningur stofnunarinnar við ríkið rennur út 2017. Hjá BBC starfa nú um 8000 blaðamenn og er stofnunin, sem hafði um 3,7 milljarða punda í tekjur af afnotagjöldum í fyrra,  langsamlega  stærsti vinnuveitandi fjölmiðlafólks í Bretlandi.   Sjá einnig hér  
Lesa meira
Frá mótmælum í Úkraínu

Minna á siðareglur í umfjöllun um Úkraínu

 Bæði Alþjóðasamband- og Evrópusamband blaðamanna hafa tekið undir áskorun Rússneska Blaðamannasambandsins, RUJ, þar sem  skorað er á blaðamenn sem eru að fjalla um málefni Úkraínu að  gæta að þeim kröfum sem settar eru fram í siðareglum blaðamanna.  Rússneska blaðamannasambandið (RUJ)  hefur áhyggjur af því að hatursáróður af ýmsu tagi hafi ratað inn í umfjöllun hjá ýmsum rússneskum fjölmiðlum og í fjölmiðlum víða um heim sem fjallað hafa um Úkraínu.  Samkvæmt RUJ eru sumir fjölmiðlar ekki að gæta að grunnskyldum sínum við almenning heldur elta uppi áróður sem í raun stangast á við siðareglur. Af þessum ástæðum hefur sambandið nú óskað eftir því við blaðamenn um allan heim að þeir virði siðareglur og „skrifi og segi sannleikann“ og segja í ákalli sínu:  „Við skorum á kollega okkar í Rússlandi og um heim allan að muna eftir grundvallarskyldum sínum – að skrifa og segja sannleikann, að vera óháðir ytri þrýstingi  og persónulegum skoðunum þegar þeir leita uppi upplýsingar og segja frá þeim og að leitast við að vinna ekki skaða með vinnu sinni og orðum“.   Sjá meira hér  
Lesa meira
IFJ hvetur blaðamenn til að gæta að öryggi sínu í Úkraínu

IFJ hvetur blaðamenn til að gæta að öryggi sínu í Úkraínu

Í kjölfar frétta af aukinni spennu í milli Úkraínumanna og Rússa hafa Alþjóðasamband blaðamanna og Evrópusamband blaðamanna sent út aðvörun til blaðamanna sem eru við störf í Úkraínu um að sýna alveg sérstaka aðgæslu.  Meira en 160 blaðamenn hafa meiðst frá því átökin í landinu hófust  í nóvember síðast liðnum og einn blaðamaður,  Vyacheslaqv Vereymi, lét lífið eftir miskunnarlausar barsmiðar í síðasta mánuði.  „ Í ljósi grimmilegra árása á blaðamenn í Úkraínu á síðustu mánuðum og vaxandi spennu í landinu hvetjum við blaðamenn sem eru þar við störf að sýna aðæslu og hyggja ætíð að öryggi sínu. Engin frétt er svo mikilvæg að hún kalli á dauða fréttamannsins,“ segir formaður IFJ Jim Boumelha.  Sjá leiðbeiningar IFJ/EFJ hér
Lesa meira
Fordæmir tilraunir til að vega að tjáningarfrelsi

Fordæmir tilraunir til að vega að tjáningarfrelsi

   Stjórn Blaðamannafélags Íslands samþykkti að gefnu tilefni svofellda ályktun á fundi sínum í dag, 27. febrúar 2014:  "Stjórn Blaðamannafélags Íslands fordæmir allar tilraunir til að vega að skoðana- og tjáningarfrelsi í landinu. Það verður ekki þolað að fólk í valdastöðum reyni að beita áhrifum sínum til þess að vega að tilverugrundvelli fjölmiðla vegna þess hlutverks þeirra að birta skoðanir. Slíkar tilraunir dæma sig sjálfar. Síst af öllu ættu stjórnmálamenn, sem eiga allt sitt undir því að skoðana- og tjáningarfrelsið sé sem virkast í landinu, að grípa til slíkra örþrifaráða. Tjáningarfrelsið felur ekki bara í sér réttinn til að láta skoðanir sínar í ljós heldur einnig þá skyldu að virða skoðanir annarra.“
Lesa meira
Viðsnúningur í rekstri Moggans

Viðsnúningur í rekstri Moggans

Morgunblaðið var rekið með 6 milljón króna hagnaði í fyrra og er þetta besta afkoma hjá blaðinu í rúman áratug að því er fram kemur í frétt í Morgunblaðinu. Blaðið var sem kunnugt er í mjög erfiðum rekstri um og fyrst eftir hrun þannig að viðsnúningurinn er umtalsveriður. Óskar Magnússon þakkar þennan viðsnúning  útsjónasemi í tekjuöflun og ráðdeild í útgjöldum í frétt blaðsins. Sjá hér  
Lesa meira
Dómstóll vill að blaðamaður beri vitni gegn heimildamanni

Dómstóll vill að blaðamaður beri vitni gegn heimildamanni

Evrópusamband blaðamanna (EFJ) hefur mótmælt harðlega ákvörðun í dómstóls í Sviss að fyrirskipa að blaðamaður beri vitni  gegn heimildamanni sínum. Málið snertir  fíkniefnasala sem fjallað var um í  þýskumælandi blaðinu  Basler Zeitung í október 2012.  „Þetta er ósvífin árás á rétt blaðamanna til að vernda heimildarmenn sína,“ segir Ricardo Gutierrez framkvæmdastjóri EFJ. Hann bætir við að „vernd heimildamanna er réttur sem tryggður er í sambandsstjórnarskrá Sviss og í Mannréttindasáttmála Evrópu.“  Blaðamannafélag Sviss  hefur einnig fordæmt þessa ákvörðun réttarins  og sagt hana hneyksli. „Þetta er ákvörðun sem beinlínis virkar gegn yfirvöldum og  almannahagsmunum enda hefði rannsókn á málinu aldrei farið af stað ef ekki hefði verið fyrir þessar upplýsingar,“ segir  Urs Thalmann, framkvæmdastjóri Blaðamannafélagsins. Sjá einnig hér  
Lesa meira
Samningar samþykktir

Samningar samþykktir

Nýgerður kjarasamningur Blaðamannafélags Íslands við Samtök atvinnulífsins var borinn undir atkvæði félaga í BÍ í leynilegri atkvæðagreiðslu á kjörfundi í dag miðvikudaginn 19. febrúar.  345 voru á kjörskrá og greiddu 69 atkvæði eða 20%.  Já sögðu 60 eða 86,95%, nei sögðu 7 eða 10,15% og auðir seðlar voru 2 eða 2,9%.  Kjarasamningurinn er því samþykktur.  Hann er grunnsamningur um kaup og kjör og blaðamanna og gildir afturvirkt frá 1. jan. sl. og felur í sér að öll laun og kjaratengdir liðir hækka um 2,8% frá þeim tíma.  Áður hafa verið samþykktir nýir sérsamningar við DV, Birting og Fréttatímann.  BÍ hefur því gert kjarasamninga við alla samningsaðila sína og gilda samningarnir til ársloka 2014.  
Lesa meira
Mótmæla réttarhöldum yfir blaðamönnum í Egyptalandi

Mótmæla réttarhöldum yfir blaðamönnum í Egyptalandi

Í morgun söfnuðust blaðamenn, stjórnmálamenn og baráttufólk fyrir mannréttindum saman fyrir utan sendiráð Egyptalands í London til að krefjast þess að blaðamenn frá Al Jazeera, bæði ensku stöðinni og þeirri arabísku, sem haldið er í fangelsi í Egyptalandi verði látnir lausir.  Það eru bresku blaðamannasamtökun NUJ og  Alþjóðasamband blaðamanna, IFJ, sem standa að mótmælunum. Réttarhöld yfir blaðamönnunum hefjast á morgun, fimmtudag, en þar eru blaðamennirnir bornir sökum sem geta kallað yfir erlendu blaðamennina allt að sjö ára fangelsisvist og allt að fimmtán ára fangavist fyrir egypska blaðamenn. Jim Bomelha forseti Alþjóða blaðamannasambandsins (IFJ) segir ástandið óviðunandi.  „Það á nú þegar að stöðva réttarhöld yfir ensku blaðamönnunum á Al Jazeera enda eru þeir ákærðir á grundvelli furðulegra forsenda um að ógna þjóðaröryggi.  Kúgun allra blaðamanna í landinu, blaðamanna sem starfa undir óbærilegum þrýstingi og ógnunum, skaðar fjölmiðlafrelsi í Egyptalandi og vekur upp spurningar um afstöðu stjórnvalda til grundvallarmannréttinda.“ Sjá einnig hér   
Lesa meira
Munið atkvæðagreiðsluna um samningana

Munið atkvæðagreiðsluna um samningana

Nýr kjarasamningur Blaðamannafélags Íslands við Samtök atvinnulífsins fyrir hönd Árvakurs, 365 og RÚV verður borinn undir atkvæði í leynilegri atkvæðgreiðslu á morgun, miðvikudaginn 19. febrúar 2014 í húsnæði BÍ að Síðumúla 23, 3. hæð. Kjörfundur stendur yfir frá 10-16. Auk þess verða haldnir kynningafundir um samninginn á 365 klukkan 10.30 í húsnæði BÍ klukkan 12.00 og á Morgunblaðinu klukkan 14.30, þar sem einnig verður hægt að greiða atkvæði um kjarasamninginn. Allir fullgildir félagar í BÍ geta greitt atkvæði nema starfsmenn DV, Birtings og Fréttatímans, þar sem gerðir hafa verið sérsamningar. Sjá samning hér
Lesa meira
Verðlaunahafar í Gerðarsafni í dag. Mynd: RÚV

Blaðamannaverðlaun afhent

Blaðamannaverðlaunin voru afhent við hátíðlega athöfn í Gerðarsafni nú síðdegis samhliða afhendingu verðlauna fyrir bestu myndir og myndskeið við opnun sýningarinnar Myndir ársins 2013.  Verðlaunahafar Blaðamannaverðlauna  voru valdir úr hópi þriggja tilnefninga dómnefndar í hverjum flokki, en flokkarnir eru fjórir. Verðlaunahafarnir voru þessir: Stígur Helgason á Fréttablaðinu fékk verðlaun fyrir Viðtal ársins 2013; Jón Bjarki Magnússon og Jóhann Páll Jóhannsson blaðamenn á DV fengu verðlaun fyrir Rannsóknarblaðamennsku ársins 2013; Ritstjórn Kastljóss fékk verðlaun fyrir Umfjöllun ársins 2013; og Bergljót Baldursdóttir á RÚV fékk  Blaðamannaverðlaun ársins 2013. Þá átti Páll Stefánsson Mynd ársins 2013. Tilnefningarnar má sjá hér, en rökstuðningur dómnefndar fyrir vali sínu í hinum fjórum flokkum blaðamannaverðlaunanna  var eftirfarandi: Viðtal ársinsViðtal Stígs Helgasonar sem birtist í Fréttablaðinu er áhrifaríkt og segir margbrotna sögu Maríu á sterkan og beinskeyttan hátt, þar sem hugarfari, togstreitu og tilfinningum Maríu er listilega lýst.  Stígur varpar ljósi á flókið tilfinningasamband fórnarlambs kynferðisofbeldis til gerandans og lýsir vangaveltum hennar um áhrif fortíðarinnar á lífsleið hennar vel – Eins og hvernig ofbeldið leiddi til þess að hún missti áhugann á lögfræði, sem hún vildi læra, þar sem trúin á réttarkerfið hvarf við sýknudóm fósturföðurins. Einnig heilabrota um hvort vantraust hennar á karlmönnum hafi verið ástæða þess að hún kaus að búa með konu. Stígur sýndi viðmælanda sínum verðskuldaða virðingu án þess að draga neitt undan. Viðtalið er hnitmiðað, áhrifaríkt og varpaði ljósi á óvenjulegar aðstæður í baráttu stúdenta við yfirvöld.  En fyrst og fremst vekur viðtalið von um að hægt sé að styrkjast við raunir lífisins.    Rannsóknarblaðamennska ársinsÍ umfjöllun sinni um hælisleitendur á Íslandi varpa blaðamennirnir, Jón Bjarki Magnússon og Jóhann Páll Jóhannsson, ljósi á aðstæður fólks hér á landi sem fæstir láta sig varða. Þeir leiða lesendur sína inn í skúmaskotin, gefa röddum hælisleitenda vægi, benda á neikvæð og niðurlægjandi viðhorf, sýna fram á brotalamir í kerfinu og síðast en ekki síst fylgja mörgum þráðum vel eftir. Með umfjölluninni í heild er vakin verðskulduð athygli á aðbúnaði og aðstæðum hælisleitenda á Íslandi og þá um leið á málaflokki sem hefur vaxið að umfangi í íslensku samfélagi síðustu misserin.   Umfjöllun ársinsVerðlaun fyrir umfjöllun ársins fær ritstjórn Kastljóss fyrir áhrifamikla umfjöllun um kynferðisbrot og afleiðingar þeirra. Kastljós afhjúpaði ítarleg kynferðisbrot Karl Vignis Þorsteinssonar með játningum hans og afhjúpaði um leið vanmátt samfélagsins til að takast á við brot hans. Umfjöllun Kastljóss um vanmátt samfélagsins gagnvart kynferðisbrotum hélt áfram með áhrifamiklum viðtölum við Hilmar Þorbjörnsson og Eirík Guðmundsson um kærur þeirra fyrir kynferðisbrot á hendur kennara á Ísafirði. Einnig fjallaði Kastljós um mál Guðnýjar Jónu Kristjánsdóttur sem fluttist frá heimabæ sínum eftir að hluti bæjarbúa studdi dæmdan nauðgara hennar opinberlega. Vönduð umfjöllun Kastljóss sýndi berlega hve erfitt það getur verið að leggja fram kæru vegna kynferðisbrots og standa í kjölfarið keikur gagnvart gagnrýni nærsamfélagsins en áhrifamáttur umfjöllunarinnar sást líka greinilega í verulegri fjölgun kæra í kjölfar hennar.   Blaðamannaverðlaun ársinsBergljót Baldursdóttir hefur um árabil fjallað um margháttuð vísindastörf og rannsóknir. Hefur hún farið inná ólík fræðasvið, ekki síst heilbrigðismál og þannig með tíma og fyrirhöfn aflað sér víðtækrar þekkingar. Með því hefur henni tekist að gefa innsýn í flóknar sérgreinar. Á það bæði við um innlendar sem erlendar rannsóknir. Bergljót hefur undanfarið leitt heilbrigðismálateymi fréttastofu Ríkisútvarpsins. Ásamt  henni skipa það fréttamennirnir Sunna Valgerðardóttir og Valgeir Örn Ragnarsson. Teymið hefur fjallað um heilbrigðismál á landsvísu og dregið fram margháttaðan vanda sem oftar en ekki á rót sína að rekja til sílækkandi fjárframlaga og aðhalds í rekstri. Umfjöllun Fréttastofu Ríkisútvarpsins sem Bergljót leiddi reis hæst í október þegar hún ræddi við starfsfólk og sjúklinga á þremur lyflækningadeildum Landspítalans.  Þessar fréttir drógu í senn fram með skýrum hætti að ekki yrði gengið lengra í aðhaldi og sparnaði.   Ljósmyndaverðlaun Í dag voru einnig afhent verðlaun fyrir bestu myndir og myndskeið eins og áður segir.  Baldur Hrafnkell Jónsson fékk verðlaun fyrir besta myndskeið fréttatökumanns á ljósvakamiðlulum en eins og áður segir tók Páll Stefánsson Mynd ársins. Sú mynd er af  Maylis Lasserre, franskri stúlku sem var týnd á Vestfjörðum í tvo daga. Myndin var einnig valin portrett mynd ársins. Umsögn dómnefndar: Tilfinningaþrungið portrait sem fangar athygli áhorfanda samstundis, vekur upp óræðnar tilfinningar og lætur áhorfandann vilja vita meira um viðfangsefnið, hver er hún, hvað kom fyrir Myndröð ársins tók Kjartan Þorbjörnsson af Guðmundi Felix Grétarssyni, en Guðmundur missti báða handleggina í vinnuslysi árið 1998. Umsögn dómnefndar: Frábær og vel unnin myndröð sem lýsir vel þeim erfiðleikum sem Guðmundur Felix Grétarsson þarf að mæta daglega. Hér er á ferðinni myndröð með mörgum góðum og sterkum myndum. Fréttamynd ársins tók Sigtryggur Ari Jóhannsson af Karli Vigni Þorsteinssyni er hann var færður fyrir héraðsdómara. Umsögn dómnefndar: Þetta er ákaflega einföld og vel uppbyggð fréttamynd. Styrkur hennar felst í samspili magnþrunginnar birtu og einfaldleikanum sem kalla fram sterk hughrif. Hún markar endalokin á langri og sorglegri sögu afbrotamanns sem öll þjóðin var meðvituð um. Íþróttamynd ársins tók Árni Torfason af Anítu Hinriksdóttur. Umsögn dómnefndar: Hin rísandi unga stjarna Aníta Hinriksdóttir er í brennipunkti þessarar listfengnu myndar sem kemur til skila bæði hraða og hreyfingu. Umhverfismynd ársins tók Vilhelm Gunnarsson í Kolgrafafirði. Umsögn dómnefndar: Áhrifarík mynd sem dregur skýrt fram hversu stór í sniðum síldardauðinn í Kolgrafarfirði var. Val ljósmyndara á sjónarhorni gerir það að verkum að landið virðist „teppalagt” af síld. Útkoman er á vissan hátt yfirþyrmandi en jafnframt súrrealísk. Tímaritamynd ársins tók Kristinn Magnússon fyrir mynd sína af Ásgeiri Trausta. Umsögn dómnefndar: Skemmtilega unnin mynd af tónlistarmanninum Ásgeiri Trausta. Myndvinnsla í takt við hans tónlistarstefnu. Dæmi um einfalda hugmynd, sem virkar. "Daglegt líf“-mynd ársins tók Kjartan Þorbjörnsson af uppvakningum á Hverfisgötu. Umsögn dómnefndar: Snjöll innrömmun hjá ljósmyndaranum, að ná að fanga augnarráði pinup stúlkunnar í glugganum, sem gjóir augunum að unga fólkinu í uppvakningagerfinu. Tvinnar saman þeirra ólíku (þó ekki) menningarheima.      
Lesa meira