Fréttir

Síðustu forvöð að koma með tillögur - Samkeppni um nafn á sal BÍ

Síðustu forvöð að koma með tillögur - Samkeppni um nafn á sal BÍ

 Á morgun, 12. janúar,   mun verða lokað fyrir móttöku á tillögum um nafn á nýjan sal Blaðamannafélagsins og þeir sem  enn vilja koma með tillögu þurfa því að drífa í því.  Eins og greint hefur verið frá bæði hér á press.is og í Blaðamanninum hefur Blaðamannafélagið útbúið glæsilegan veislusal í húsakynnum sínum við Síðumúla 23. Líkt og Hjálmar Jónsson, formaður BÍ, boðaði í síðasta hefti Blaðamannsins fer nú fram samkeppni um nafn á veislusalinn, sem verður í raun félagsmiðstöð blaðamanna, og verða veitt verðlaun fyrir það nafn sem valið er. Verðlaunin eru ein vika að eigin vali í einu af orlofshúsum. KOMIÐ MEÐ TILLÖGU MEÐ ÞVÍ AÐ SMELLA HÉR
Lesa meira
Fjórða valdið - bíómynd

Fjórða valdið - bíómynd

Á dögunum var birt á netinu heimildamyndin „Fjórða valdið“ eða  "The Fourth Estate“ sem er bresk mynd  og ekki unnin í hagnaðarskyni. Myndin er mjög gagnrýnin á fjölmiðla og sérstaklega áhrif markaðsvæðingar á störf og starfshætti á breskum miðlum og byggir á gagnrýnum (vinstri) viðhorfum til valdakerfis á Vesturlöndum og samþjöppunar eignarhalds. Eflaust eru ákveðnir þættir myndarinnar umdeilanlegir, en óhætt er að segja að í henni endurspeglist áhyggjur af og gagnrýni á stöðu fjölmiðla sem áberandi eru hjá stórum hópum fjölmiðlaáhugafólks, ekki síst blaðamanna. Myndin er nokkuð löng eða um 80 mínútur en áhugsamir geta nálgast hana í gegnum hlekkinn hér að neðan.  Myndina gerður þau Lee Salter and Elizabeth Mizon. Sjá myndina hér 
Lesa meira
Sextán blaðamenn drepnir í Evrópu 2015

Sextán blaðamenn drepnir í Evrópu 2015

Alþjóðasamband blaðamanna (IFJ) hefur birt lista yfir 109 blaðamenn sem létust við störf sín á árinu 2015 vegan ofbeldis – þar sem þeir voru skotmörk drápa, fornarlömb í sprengingum eða lentu á milli í skothríð. Listi IFJ nafngreinir 109 nær til drápa í 30 löndum Í Evrópi voru 16 fjölmiðlamenn drepnir árið 2015: 11 í Frakklandi, 2 í Úkraínu, 1 í Póllandi, og 1 í Tyrklandi. ÞetEkki hafa fleiri blaðamenn verið drepnir í Evrópu síðustu 15 árin. Sjá einnig hér  
Lesa meira
Siðareglur í 50 ár

Siðareglur í 50 ár

"Blaðamenn Íslands hafa haft yfir sér siðareglur frá 9. maí 1965 eða í hálfa öld. Þegar þessi tímamót urðu sl. vor þá voru kærð mál komin í alls 219 hjá Siðanefnd BÍ og er meðaltalið því rúmlega 4 mál á ári. Siðareglurnar hafa í raun breyst lítið frá upphafi og nýlegar umræður og tillögur um breytingar leiddu ekki til niðurstöðu. Það er hins vegar mat höfundar að í raun hafi mikið breyst – með breyttum tíðaranda, aukinni fagmennsku og umturnuðu fjölmiðlaumhverfi hefur túlkun á hinum „fábrotnu“ siðareglum breyst töluvert."  Þetta segir Friðrik Þór Guðmundsson í áhugaverðri yfirlitsgrein um siðareglur BÍ í nýjum Blaðamanni sem er þessa dagana að berast félagsmönnum í pósti. Með grein Friðriks birtist listi yfir öll mál siðanefndar ásamt stikkorðum sem gefa til kynna hverjir áttu hlut að máli og hvers eðlis málin voru. Sjá Blaðamanninn rafrænt hér
Lesa meira
Jólahlaðborð í nýjum sal

Jólahlaðborð í nýjum sal

Í dag var haldið jólahlaðborð í húsakynnum Blaðamannafélagsins þar sem hittust gamlir félagar sem alla jafnan hafa komið saman í hádeginu á föstudögum undanfarin ár. Að þessu sinni var óvenju hátíðlegt andrúmsloftið, en þetta var í fyrsta sinn sem félagar notfæra sér hinn nýja sal og veislueldhús sem búið er að standsetja í Síðumúlanum.
Lesa meira
Hvað boðar nýárs blessuð sól í samfélagsmiðlum?

Hvað boðar nýárs blessuð sól í samfélagsmiðlum?

Í lok árs er algengt að fólk líti yfir farinn veg og skyggnist inn í framtíðina og velti  fyrir sér hvert stefni á hinum ýmsu sviðum. Hvert stefnir t.d. í þróun samfélagsmiðla?  Ýmsir sérfræðingar virðast telja að hlutverk þeirra muni enn fara vaxandi og þá ekki bara sem farvegur skilaboða heldur líka sem ritstjórnandi skilaboða og framleiðandi skilaboða og efnis af ýmsu tagi t.d. á myndrænu formi.  Á heimasíðu Alþjóðasamtaka blaðaútgefenda  voru ýmsir sérfræðingar beðnir um að spá í spilin og segja hvert þeir telja þróunina á árinu 2016 í samflélagsmiðlum stefna. Sjá úttekt hér      
Lesa meira
Donald Trump

Viðhorf fjölmiðla til Trumps að breytast

 Viðhorf fjömiðla til Donalds Trump, eins frambjóðendanna til að verða forsetaframbjóðandi Repúblikana, hefur tekið miklum stakkaskiptum í vikunni eftir ummæli hans um að banna ætti múslimum að koma til Bandaríkjanna. Þetta birtist m.a. í því með hvaða hætti hann er sýndur eða ekki sýndur í fréttum. Um nokkurt skeið hefur hann verið rammaður inn sem skemmtilegur sérvitringur sem kryddar baráttuna þó hann sé tekin misjafnlega alvarlega. Þannig hefur t.d. Huffington Post um nokkurt skeið sagt fréttir af honum á afþreyingar eða skemmtiefnishluta vefs síns (entertainment), en er nú hætt að dekka hann þar líka á þeirri forsendu að hann hann sé lítið skemmtiefni. Þetta viðhorf er nokkuð dæmigert fyrir þann viðsnúning sem orðið hefur og virðast margir bandarískir miðlar nú líta á Trump sem ógn við lýðræðið. Þannig sagði Tom Brokaw í leiðarapistli á NBC sjónvarpsstöðinni á þriðjudagin að yfirlýsing Trumps væri, „jafnvel nú, á tímum ótrúlegra öfga, hættuleg og gegni gegn straum sögunnar, lögum og grundvallar gildum Bandaríkjanna sjálfra.“ Sjá meira hér  
Lesa meira
Noregur: Áskrifarblöð óttast stífari reglur um símasölu

Noregur: Áskrifarblöð óttast stífari reglur um símasölu

Hugmyndir stjórnvalda í Noregi um að þrengja mjög skilyrði og möguleika á símasölu hafa valdið nokkrum áhyggjum hjá aðstandendum áskriftarblaða, en þau reiða sig mikið á síka sölu í áskriftarherferðum sínum. Það er ráðherra neytendamála, framfaraflokkskonan Solveig Horne, sem hefur lýst vilja til að koma til móts við kröfur neytendasamtakanna um stífari umgjörð um símasölu.  Sjá meira hér  
Lesa meira
EIns og sjá má ber Kahja greinileg merki misþyrminga.

Dönskum blaðamanni misþyrmt í Tyrklandi

Evrópusamband blaðamanna og Blaðamannafélagið í Danmörku hafa fordæmt árás tyrkneskra landamæravarða á danskan blaðamann, Nagieb Khaja, í gær þegar Khaja var að fara yfir landamærin til Sýrlands til að dekka flóttamannamál.  Blaðamannafélags Danmerkur er þegar búið að skrifa tyrkneska sendiherranum  í Danmörku og krefjast þess að rannsókn fari fram á málinu og sama krafa hefur komið frá EFJ. Yfirvöld Í Tyrklandi tilkynntu í dag að rannsókn málsins væri hafin. Kahja var á leiðinni yfir landamærin þegar tyrkneskir öryggisverður stöðvuðu hann og þrátt fyrir að hann hafi gert grein fyrir sér sem blaðamanni þá var hann barinn í jörðina og sparkað  í hann.  Sjá meira hér  
Lesa meira
Verðlaunahafar við síðustu verðlaunaveitingu sem fram fór í apríl sl.

Óskað eftir tilnefningum til Evrópsku blaðamannaverðlaunanna

Evrópsku blaðamannaverðlaun hafa nú óskað eftir tilnefningum til verðlaunanna og er tilnefningarfrestur til 18. desember næstkomandi.  Gæði í blaðamennsku eru nauðsynleg heilbrigðu lýðræði og verðlaunin miða að því að hvetja til og draga athyglina að góðri blaðamennsku. Verðlaunin eru veitt í fjórum flokkum og er verðlaunafé í hverjum um sig 10.000 evrur eða tæplega 1,5 milljón krónur. Flokkarnir eru þessir: Verðlaun fyrir framúrskarandi skrif Verðlaun fyrir framúrskarandi umfjöllun Verðlaun fyrir rannsóknarblaðamennsku Verðlaun fyrir nýsköpun eða nýmæli Efni sem tilnefnt er þarf að hafa birst á tímabilinu frá 1. Desember 2014 og 31. Desember 2015 og blaðamenn sem búa og starfa í Evrópu eru gjaldgengir sem og þeir blaðamenn sem starfa fyrir evrópsk fjölmiðlafyrirtæki.  Sjá einnig hér  
Lesa meira