- Félagið
- Faglegt
- Kaup & kjör
- Styrkir & sjóðir
- Orlofskostir
- Mínar síður
Gengið hefur verið frá ráðningu Freyju Steingrímsdóttur í starf framkvæmdastjóra Blaðamannafélags Íslands og hefur hún störf í lok maí. Framkvæmdastjóri BÍ hefur umsjón með og ber ábyrgð á faglegu starfi á vettvangi félagsins, daglegum rekstri og áætlanagerð, sér um stefnumótun í samráði við stjórn og kemur fram fyrir hönd félagsins eftir því sem við á og gætir hagsmuna þess.
Stjórn BÍ tók einróma ákvörðun um ráðninguna. Sigríður Dögg Auðunsdóttir formaður segir: “Við erum stolt og ánægð að fá Freyju til liðs við okkur enda kemur hún inn með mikilvæga reynslu meðal annars af hagsmunabaráttu og starfsemi stéttarfélaga. Hún hefur stýrt stórum verkefnum fyrir BSRB og mun reynsla hennar og þekking af íslenskum stjórnmálum og stjórnsýslu nýtast vel. Auk þess hefur hún stýrt stórum málefna- og vitundarvakningarherferðum bæði innanlands og erlendis, nú síðast í tengslum við Kvennaverkfallið 2023 sem vakti heimsathygli. Við hlökkum til að starfa með henni að því að efla blaðamennsku og fjölmiðlun, standa vörð um hagsmuni stéttarinnar og efla faglegt starf innan félagsins.”
Freyja er stjórnmálafræðingur með reynslu af hagsmunabaráttu og starfsemi stéttarfélaga, samskiptum við fjölmiðla, stefnumótun, stjórnsýslu og ýmis konar málefnaherferðum. Hún hefur undanfarin ár starfað sem samskiptastjóri BSRB, stærstu heildarsamtaka opinbers starfsfólks á Íslandi. Hún vann áður á Alþingi sem aðstoðarmaður formanns Samfylkingarinnar og fyrir það sem ráðgjafi hjá Indigo Strategies í Brussel þar sem hún stýrði meðal annars verkefnum fyrir regnhlífarsamtök evrópskra verkalýðshreyfinga og sinnti bæði stefnumótun og hagsmunabaráttu í þágu launafólks í Evrópu. Hún hefur einnig starfað hjá Festu - miðstöð um samfélagsábyrgð fyrirtækja, Eftirlitsstofnun EFTA og Evrópuþinginu.
Freyja Steingrímsdóttir segir: „Ég hlakka til að hlaupa af stað með þessari metnaðarfullu stjórn blaðamanna í þau spennandi verkefni sem framundan eru. Rétt eins og kemur fram í herferð BÍ hefur blaðamennska aldrei verið mikilvægari og ég mun leggja mig alla fram að efla slagkraft og gæta hagsmuna blaðamanna sem og annarra þeirra sem miðla upplýsingum til almennings í hvívetna.”