Félagatal BÍ tekið úr birtingu í samræmi við landslög

Birting félagatals BÍ á vef félagsins stríður gegn lögum um persónuvernd að áliti lögmanns BÍ og forstjóra Persónuverndar og er því ekki lengur opinbert almenningi. Stjórn BÍ var upplýst um álit lögmanns BÍ við gerð persónuverndarstefnu félagsins og ákvað í framhaldinu að félagatalið yrði tekið úr birtingu. Samkvæmt persónuverndarlöggjöfinni telst aðild einstaklinga að stéttarfélögum til viðkvæmra persónuupplýsinga, líkt og t.a.m. einnig heilbrigðisupplýsingar, og gilda því strangar reglur um birtingu þeirra.

Í lögum BÍ er hins vegar ákvæði um að birta skuli félagatalið og var því ákveðið að leggja fram tillögu þess efnis á síðasta aðalfundi að ákvæðið yrði fellt brott úr lögum. Var tillagan felld og stendur ákvæðið því óbreytt í lögum félagsins þrátt fyrir að birtingin sé óheimil samkvæmt landslögum. Til að fá staðfestingu á áliti lögmanns BÍ eftir niðurstöðu framhaldsaðalfundar leitaði formaður félagsins eftir áliti Helgu Þórisdóttur, forstjóra Persónuverndar, á því hvort áframhaldandi birting félagatals BÍ bryti gegn lögum um persónuvernd og vinnslu persónuupplýsinga. Staðfesti hún álit lögmanns BÍ um að taka beri félagatalið úr opinberri birtingu enda gangi landslög framar lögum stéttarfélaga.

Þá var einnig leitað til systursamtaka BÍ í Danmörku, Noregi, Finnlandi og Svíþjóð og óskað eftir upplýsingum um hvort félögin birtu félagatöl sín með einhverjum hætti og bárust afgerandi svör þess efnis að það væri ekki gert vegna þess að slíkt myndi brjóta gegn persónuverndarlögum sem gilda fyrir öll ríki innan evrópska efnahagssvæðisins.

Stjórn BÍ hefur nú lokadrög að nýrri persónuverndarstefnu félagsins til umfjöllunar og verður hún birt þegar hún hefur verið afgreidd.