Salur formlega tekin í notkun á föstudag

Hér má sjá eldri blaðamenn og formann félagsins  hittast og ræða málin og taka forskot á sæluna í hi…
Hér má sjá eldri blaðamenn og formann félagsins hittast og ræða málin og taka forskot á sæluna í hinum nýja sal BÍ.

Á föstudaginn kemur, 5. febrúar  klukkan 19-21 verður formlega tekinn í notkun nýr salur Blaðamannafélags Íslands í austuenda hússins að Síðumúla 23, þar sem skrifstofur BÍ eru. Við það tækifæri verður tilkynnt um nafn salarins. Við sama tækifæri stendur til að heiðra nokkra blaðamenn fyrir langan og farsælan feril í blaðamennsku og störf í þágu Blaðamannafélagsins í gegnum tíðina.  Matur og drykkur verður á boðstólum og eru félagsmenn og makar þeirra hvattir til að mæta.  Vinsamlegast skráið ykkur hér á  press.is á skráningarhnapp sem er hér á forsíðunni   til þess að hægt sé að áætla nokkurn veginn fjölda þeirra sem hyggjast koma.