Vinnustofa með Just Loomis

 

Ljósmyndadeild Tækniskólans og Endurmenntunarskólinn standa fyrir námskeiði í skapandi portrettmyndatöku á vegum hins þekkta bandaríska ljósmyndara Just Loomis. Just Loomis hóf feril sinn í ljósmyndun á 8. áratugnum sem aðstoðarmaður Helmut Newton, eins þekktasta tískuljósmyndara heims.  Félögum í BÍ sem hug hafa á að sækjanámskeiðið er bent á að þeir gætu sótt um styrk í Endurmenntnarsjóð BÍ.

Á 9. áratugnum var Just Loomis  eftirsóttur tískuljósmyndari beggja vegna Atlantshafs og myndaði m.a. fyrir tímarit á borð við Harper's Bazaar, British Vouge, Vanity Fair, The New Yorker og The New York Times Magazine. Auk tískumyndatöku starfaði Loomis við portrettmyndatökur af frægu fólki. Í því sambandi má nefna Madonna, Carla Bruni, Uma Thurman, Calvin Klein og David Lynch. Þar að auki hefur hann myndað tónlistarfólk á borð við hljómsveitina a-ha, Eric Clapton, John Fogerty, George Benson, Amy Grant, Patty Griffin og KD Lang. Frá því laust fyrir aldamót hefur Just Loomis helgað sig persónulegri, listrænni verkefnum einkum á sviði portrettmyndatöku. Sú vinna hefur m.a. getið af sér einkasýningu í Lincoln Center í New York 2009 og tilnefningu til Deutscher Fotobuchpreis fyrir bókina „As We Are” 2010. Sú bók var einnig kosin „Photobook of the Year” af tímaritunum Communication Arts og Photo District News.

Sjá einnig hér