Traust á fjölmiðlum minnkar

MMR kannaði á dögunum traust almennings til helstu sjónvarps-, prent- og netfréttamiðla. Traust til meirihluta þeirra fjölmiðla sem mældir voru hefur dregist saman frá því í nóvember 2013.

Af þeim fréttamiðlum sem kannaðir voru báru svarendur mest traust til fréttamiðla RÚV. Af þeim sem tóku afstöðu sögðust 70,6% bera mikið traust til Fréttastofu RÚV (76,5% í nóvember 2013) og 64,5% sögðust bera mikið traust til ruv.is (71,1% í nóvember 2013).

Í flokki netfréttamiðla naut mbl.is næst mest trausts meðal almennings (á eftir ruv.is). Af þeim sem tóku afstöðu sögðust 46,7% bera mikið traust til mbl.is. Traust til mbl.is hefur dregist nokkuð saman frá því í desember 2008 þegar 64,0% aðspurðra sögðust bera mikið traust til mbl.is.
Af þeim sem tóku afstöðu nú sögðust 33,9% bera mikið traust til Visir.is og 27,0% sögðust bera mikið traust til Kjarninn.is.

Þeir prentmiðlar sem nutu mest trausts meðal almennings voru Morgunblaðið og Fréttablaðið. Af þeim sem tóku afstöðu sögðust 40,6% bera mikið traust til Morgunblaðsins nú, borið saman við 46,4% í nóvember 2013 og 34,9% sögðust bera mikið traust til Fréttablaðsins nú, borið saman við 39,2% í fyrra. Hlutfallslega fleiri sögðust bera lítið traust til Morgunblaðsins en til Fréttablaðsins. Af þeim sem tóku afstöðu sögðust 30,2% bera lítið traust til Morgunblaðsins en 22,9% sögðust bera lítið traust til Fréttablaðsins.

Traust til fréttamiðla DV hefur aukist frá því í nóvember 2013. Af þeim sem tóku afstöðu nú sögðust 14,5% bera mikið traust til DV, borið saman við 10,0% í fyrra. Þá sögðust og 13,2% bera mikið traust til dv.is nú, borið saman við 9,1% í nóvember 2013.