Blaðamannaverðlaun: Tilnefningarfrestur til 26. janúar!

Verðlaunanefnd Blaðamannaverðlauna BÍ minnir á að frestur til að tilnefna til Blaðamannaverðlauna fyrir árið 2017, er  26. janúar næst komandi, en verðlaunin verða veitt í 15. skipti þann 3. mars næstkomandi. Tilnefningar dómnefndar verða kynntar viku fyrir afhendingu en skilafrestur tilnefninga til dómnefndar er kl. 12 á hádegi föstudaginn  26. janúar 2017.

Eins og síðustu ár verða verðlaunin veitt í fjórum flokkum:  

  • Besta umfjöllun ársins 2017
  • Viðtal ársins 2017
  • Blaðamannaverðlaun ársins 2017
  • Rannsóknarblaðamennska ársins 2017

Hægt er að senda inn tilnefningar til verðlaunanna til skrifstofu Blaðamannafélagsins í Síðumúla  23 á auglýstum skrifstofutíma ásamt gögnum með röksemdafærslu fyrir tilnefningunni. Jafnframt er hægt að senda tilnefningar inn rafrænt með hnappi finna má hér á síðunni hægra megin. 

Tilnefningar dómnefndar verða gerðar kunnar laugardaginn 24. febrúar. Viku síðar, þann 3. mars, verða verðlaunin sjálf afhent.