Tilnefningarfrestur styttist!

Skilafrestur tilnefninga til dómnefndar vegna Blaðamannaverðlauna fyrir árið 2015 rennur út í lok þessarar viku og er kl. 12 á hádegi föstudaginn 29. janúar.

Eins og  síðustu ár verða verðlaunin veitt í fjórum flokkum en þeir eru þessir:

• Besta umfjöllun ársins 2015 

• Viðtal ársins 2015 

• Rannsóknarblaðamennska ársins 2015 

• Blaðamannaverðlaun ársins 2015

Hægt er að senda inn tilnefningar  til verðlaunanna á skrifstofu Blaðamannafélagsins í Síðumúla  23 á auglýstum skrifstofutíma ásamt gögnum með röksemdafærslu fyrir tilnefningunni. Jafnframt er hægt að tilnefna með rafrænum hætti – með hnappnum „Tilnefnið hér“ hér til hliðar á síðunni.

Tilnefningar dómnefndar verða síðan gerðar kunnar í laugardaginn 27. febrúar og viku síðar, þann 5. mars verða verðlaunin sjálf afhent samhliða því að sýning Blaðaljósmyndarafélagsins „Myndir ársins“ verður opnuð í Perlunni.

Sjá reglugerð um Blaðamannaveriðlaun B.Í.