Tilnefningafrestur til 23. janúar

Blaðamannaverðlaun Blaðamannafélags Íslands verða veitt í 12. skipti þann 28. febrúar næstkomandi. Tilnefningar dómnefndar verða kynntar viku fyrir afhendingu en  skilafrestur tilnefninga til dómnefndar er föstudagurinn 23. janúar.
Eins og á síðasta ári verða verðlaunin veitt í fjórum flokkum en þeir eru þessir:

• Besta umfjöllun ársins 2014
• Viðtal ársins 2014
• Rannsóknarblaðamennska ársins 2014
• Blaðamannaverðlaun ársins 2014

Hægt er að senda inn tilnefningar  til verðlaunanna á skrifstofu Blaðamannafélagsins í Síðumúla  23 á auglýstum skrifstofutíma ásamt gögnum með röksemdafærslu fyrir tilnefningunni. Jafnframt er hægt að tilnefna með rafrænum hætti – með hnappnum „Tilnefnið hér“ hér til hliðar á síðunni.

 

 Tilnefningar dómnefndar verða síðan gerðar kunnar í laugardaginn 21. febrúar og viku síðar, þann 28. febrúar  verða verðlaunin sjálf afhent samhliða því að sýning Blaðaljósmyndarafélagsins „Myndir ársins“ verður opnuð.