Tilnefningafrestur að styttast!

Frá afhendingu verðlaunanna í fyrra.
Frá afhendingu verðlaunanna í fyrra.

Umhverfis- og auðlindaráðuneytið auglýsir eftir tilnefningum til Fjölmiðlaverðlauna sem afhent verða á Degi íslenskrar náttúru þann 16. september í haust. Samhliða er auglýst eftir tilnefniningum til Náttúruverndarviðurkenningu Sigríðar í Brattholti.

Fjölmiðlaverðlaunum umhverfis- og auðlindaráðuneytisins er ætlað að hvetja til hverskyns umfjöllunar um íslenska náttúru, hvort heldur er í því skyni að vekja athygli á einstakri náttúru landsins eða benda á þær ógnir sem steðja að íslenskri náttúru og mikilvægi þess að varðveita hana og vernda til framtíðar.

Óskað er eftir tilnefningum til beggja viðurkenninga í síðasta lagi 16. ágúst 2015. Tilnefningar með rökstuðningi sendist umhverfis- og auðlindaráðuneytinu, Skuggasundi 1, 101 Reykjavík, eða á netfangið postur@uar.isThis email address is being protected from spambots. You need JavaScript enabled to view it.