Sumarlokun á skrifstofu BÍ

Mynd: Next voyage
Mynd: Next voyage

Skrifstofa Blaðamannafélagsins verður lokuð frá 15. júlí til og með 9. ágúst vegna sumarleyfa starfsfólks. 

Orlofshús: Ath. að ekki þarf lengur að sækja lykla á skrifstofu BÍ heldur eru komin lyklabox í öll orlofshús og fá leigjendur upplýsingar um það sendar í tölvupósti. Ef eitthvað kemur upp á meðan dvöl stendur í orlofshúsi er hægt að hringja í umsjónarmann en símanúmer umsjónarmanna eru einnig send leigjendum í upplýsingapósti.

Styrkir: Umsóknir um styrki og sjúkradagpeninga sem berast eftir 11. júlí bíða afgreiðslu þar til skrifstofa opnar á ný.

Kjara- og réttindamál: Ef málið þolir enga bið er hægt að ná í formann BÍ, Sigríði Dögg, í síma 894-9050.