Stjórnvöld taki af skarið áður en það er of seint

Elfa Ýr Gylfadóttir
Elfa Ýr Gylfadóttir

„Nauðsynlegt er að stjórnvöld taki af skarið og marki stefnu um það hvernig unnt er að treysta stöðu og framtíð íslenskra fjölmiðla áður en það er orðið of seint. Íslenskir fjölmiðlar eru grunnurinn að því að viðhalda lýðræði, menningu og samheldni íslenskrar þjóðar.“  Þetta segir Elfa Ýr Gylfadóttir, framkvæmdastjóri Fjölmiðlanefndar í pistli sínum í ársskýrslu stofnunarinnar sem birt var nú fyrir jólin. 

Elfa  bendir á að fjölmiðlar um víða veröld standi ný á tímamótum og fjárhagsstaða þeirra, jafnt einkarekinna miðla sem ríkismiðla, sé erfið. Á sama tíma segir hún hlutverk þeirra sérstaklega mikilvægt  mikilvægt í nútíma samfélagi. Um það segir hun: „Á sama tíma hafa fjölmiðlar sem hafa gildi faglegrar blaðamennsku að leiðarljósi, hvort heldur einkareknir eða ríkisreknir, sjaldan verið eins mikilvægir og á öld hinna röngu og misvísandi upplýsinga. Ábyrgð þeirra við að miðla hlutlægum fréttum og menningartengdu efni er mikil. Fjölmiðlar eiga að miðla efni sem upplýsir og stuðlar að samfélagslegri umræðu, efni sem menntar, fræðir og hvetur til gagnrýninnar hugsunar. Þeir eiga jafnframt að miðla sögu, listum og menningu og ýmiskonar afþreyingu.“

Sjá einnig hér