Skilafrestur tilnefninga rennur út á morgun!

Minnt er á að skilafrestur tilnefninga til blaðamannaverðlauna rennur út í hádeginu á morgun, 26. janúar. Hægt er að senda inn tilnefningar til verðlaunanna til skrifstofu Blaðamannafélagsins í Síðumúla  23 á auglýstum skrifstofutíma ásamt gögnum með röksemdafærslu fyrir tilnefningunni. Jafnframt er hægt að senda tilnefningar inn rafrænt með hnappi finna má hér á forsíðunni hægra megin ofarlega. 

Verðlaunin verða veitt í 15. skipti þann 3. mars næstkomandi. Tilnefningar dómnefndar verða kynntar viku fyrir afhendingu.

Eins og síðustu ár verða verðlaunin veitt í fjórum flokkum:  

  • Besta umfjöllun ársins 2017
  • Viðtal ársins 2017
  • Blaðamannaverðlaun ársins 2017
  • Rannsóknarblaðamennska ársins 2017