Skammtímasamningur undirritaður

Samninganefnd BÍ gaumgæfir samningana fyrir undirritun.  
Mynd/AA
Samninganefnd BÍ gaumgæfir samningana fyrir undirritun.
Mynd/AA

Samninganefndir BÍ og Samtaka atvinnulífsins undirrituðu þann 6. janúar samninga um framlengingu áður gildandi kjarasamninga fram til loka janúar 2024.Samningarnir eru afturvirkir til 1. nóvember 2022, og fela í sér hliðstæðar hækkanir launataxta og samið hafði verið um við stóru stéttarfélögin á síðustu vikum - VR, iðnaðarmenn, SGS. 

Nýju samningarnir verða kynntir strax eftir helgi á hverjum vinnustað sem SA semja fyrir, þ.e. RÚV, Árvakri (Morgunblaðið, Mbl.is, K100) og Sýn (Stöð2, Bylgjan, Vísir.is). Samningarnir verða í kjölfarið bornir undir atkvæði hjá félagsfólki í BÍ. Fyrirkomulag atkvæðagreiðslunnar verður líka kynnt eftir helgi. 

Samningsaðilar gerðu ennfremur með sér samkomulag um að dagskrárgerðarfólk á RÚV sem eru félagar í BÍ fengi sömu grunnhækkanir, einnig afturvirkar til 1. nóvember 2022. 

Samið verður um öll önnur atriði í upprunalegri kröfugerð BÍ á gildistíma skammtímasamningsins og er tímasett áætlun um þær viðræður hluti af samningunum sem ritað var undir í dag. Nú þegar hefur verið boðað til fyrsta sameiginlega vinnufundar samningsaðila til að hrinda þeirri viðræðuáætlun i framkvæmd. 

Viðræðuáætlun um gerð langtímasamnings

„Þetta er ekki sú kjaraleiðrétting sem við höfðum farið fram á, en vegna aðstæðna töldum við rétt að framlengja núgildandi samninga í samræmi við það sem önnur félög hafa gert,“ sagði Sigríður Dögg Auðunsdóttir, formaður BÍ, eftir undirritunina. En bætti við: „Við munum leggja áherslu á að áhersluatriði okkar í kröfugerðinni sem lögð var fram, munu nást fram í nýjum viðræðum sem hafa langtímsamning að markmiði. Þar er meðal annars ætlunin af endurskoða kjarasamninginn frá grunni. Þær viðræður hefjast strax í lok janúar.“ 

Í framhaldinu mun félagið hefja viðræður við alla þá miðla sem standa utan SA og samið er við sérstaklega.