Sjónum beint að réttinum til frjáls fréttaflutnings

Samstarfsvettvangur Evrópuráðsins um vernd blaðamennsku og öryggi blaðamanna, í samvinnu við Evrópusamband og Alþjóðasamband blaðamanna (EFJ og IFJ) og aðrar samstarfsstofnanir, kynntu í Brussel í vikunni ársskýrslu sína: War in Europe and the Fight for the Right to Report

Í skýrslunni er rætt um afleiðingar stríðsins í Úkraínu og þörfina á vandaðri og óháðri blaðamennsku. Athygli er vakin á nauðsyn þess að aðildarríki Evrópuráðsins samræmi löggjöf sína um fjölmiðlafrelsi og öryggi blaðamanna, og því meini sem felst í skipulögðum lögsóknum gegn þátttöku í opinberri umræðu – þekkt undir ensku skammstöfuninni SLAPP (¨Strategic Lawsuits Against Public Participation). Sjónum er ennfremur beint að ástandinu í Belarús (Hvíta-Rússlandi), refsileysi fyrir glæpi unna gegn blaðamönnum, fangelsun blaðamanna og regluverki sem þrengir að fjölmiðlafrelsi og eðlilegri starfsemi blaðamanna. Meðal annarra málefna sem vikið er að í skýrslunni eru málefni almannaþjónustumiðla, eftirlit með starfsemi fjölmiðla, beiting njósnaforrita (spyware) og fleira. 

Aðildarríki Evrópuráðsins hvött til dáða

289 atvik voru tilkynnt Nefndinni um vernd blaðamanna (Committe for the Protection of Journalists, CPJ) í 37 ríkjum á árinu 2022. Aðildarríki Evrópuráðsins eru hvött til að sýna meira frumkvæði í vernd frjálsrar blaðamennsku. Evrópuráðið sjálft er beðið um að „hvetja aðildarríkin til að grípa til aðgerða í þessu skyni og bregðast við ábendingum um brotalamir og tillögum um umbætur.“ Í skýrslunni er skorað á stofnanir og ríki Evrópu að lögleiða fjölmiðlafrelsislöggjöf Evrópusambandsins (European Media Freedom Act) og fylgja eftir jákvæðum aðgerðum á þessu sviði sem aðildarríki Evrópusambandsins hafa áorkað. 

Árið 2022 markaðist mjög af stríðinu í Úkraínu. Fleiri en 11.000 blaðamenn hafa hlotið skráningu hjá úkraínskum yfirvöldum til að flytja fréttir af innrásinni, en að flytja fréttir af slíkum hildarleik er miklum vandkvæðum bundið, sérstaklega af ástandinu á þeim svæðum sem Rússar halda hernumdum. Rússland er ekki lengur aðildarríki að Evrópuráðinu – því var vísað með öllu úr því í kjölfar innrásarinnar fyrir ári. 

Skýrsluna má lesa í heild sinni hér